05.04.1940
Sameinað þing: 14. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í B-deild Alþingistíðinda. (92)

1. mál, fjárlög 1941

Magnús Jónsson:

Ég er ekki frekur í kröfum á fjárl. heldur en áður. Það er aðeins ein lítil till., sem ég er 1. flm. að, en er meðflm. að 2–3 öðrum till., öllum smáum. Ein þeirra er á þskj. 308,XVII, og er um það að veita sögufélagi Skagfirðinga ofurlítinn styrk til þess að það geti launað mönnum þar í héraðinu, er vinna að því að safna ýmiskonar fróðleik um það.

Ég er einnig meðflm. að till. á þskj. 327,III, og þar sem mér hefir borizt sú frétt, að 1. flm., hv. 4. þm. Reykv (PHalld), hafi veikzt hastarlega, þá ætla ég að segja fáein orð um þessa till. Þessi till. er um það að veita 6000 kr. til bókavarðar við háskólann, þar á meðal við safn dr. Benedikts Þórarinssonar. Ég held, að það hafi verið fyrir ófullnægjandi upplýsingar, að till. svipuð þessari kom fram við 2. umr., þar sem lagt er til að lækka þennan styrk nokkuð. Ég held, að hv. þm., og sömuleiðis hv. fjvn., hafi ekki verið kunnugt um það, að safn þetta ætti þegar í stað að koma undir eign háskólans, heldur hafi menn búizt við því, að það yrði ekki fyrr en seint, sem til þess kæmi. En þetta er ekki svo, heldur mun þetta safn verða tekið upp í bókhlöðu háskólans þegar hún er tilbúin. Nú vita allir, að það er mikið verk að starfa við söfn, svo að vel sé; þar að auki ræður háskólinn yfir mörgum fleiri bókasöfnum, t.d. bókasafni Finns Jónssonar, sem hann gaf og geymt er hér niðri. Svo eru fjögur önnur stór bókasöfn. Allt þetta verður að sameina í hinu nýja háskólahúsi, og hafa þar eina stóra bókhlöðu og lestrarsal. Það má því gera ráð fyrir, að óhjákvæmilegt verði að hafa einn bókavörð, og ef til vili verður ekki hægt að komast af með einn mann, heldur yrði a.m.k, að hafa einhvern honum til aðstoðar. Það er þetta tvennt, sem gerir það að verkum, að ástæða er til þess fyrir hv. þm., að samþ. þessa till, annarsvegar að safn dr. Benedikts Þórarinssonar kemur nú þegar að notum, en hinsvegar að hafður verður opinn lestrarsalur í háskólanum.

Ég vildi segja þessi fáu orð um till., ef svo skyldi fara, að enginn annar talaði fyrir henni. Ég er svo meðflm. að till. á þskj. 327,XIV, ásamt hv. þm. N.-Ísf. og hv. 1. þm. Skagf., sem er 1. flm., og geri ég ráð fyrir, að hann muni mæla fyrir þeirri till. En hún er um að veita Örlygi Sigurðssyni styrk til myndlistarnáms. Þessi maður er sonur Sigurðar skólameistara á Akureyri, og eru margir, sem hafa séð myndir eftir hann, og ber öllum saman um, að hann sé góður dráttlistarmaður.

Sú eina till., sem ég er einn flm. að, er á þskj. 308,XXII; hún er um það að veita Ágúst Sigurmundssyni myndskera 1000 kr. styrk. Það getur æfinlega verið álitamál, hverjum listamanni eigi helzt að veita styrk og hverjum ekki. Ég get ekki sagt, að ég sé persónulega kunnugur þessum manni, en ég hefi séð nokkur af verkum hans, og mér finnast þau bera vott um óvenjulega þroskaðan listasmekk. Mér finnst oft í tréskurði koma fram vandvirkni og fágun, án þess að það sé í raun og veru svo mikil list, en mér finnst þó í myndum þessa manns koma fram verulegur listamannssmekkur. En á hinn bóginn er mjög erfitt fyrir hann að hafa ofan af fyrir sér með myndskurði, vegna þess að hér er mjög lítill markaður fyrir slíka hluti. Ég hefi þess vegna, þrátt fyrir mikla íhaldssemi í þeim efnum, borið fram brtt. við fjárl., þar sem farið er fram á að veita þessum manni styrk, til þess að hann geti haldið myndskurðinum áfram. Ég skal svo ekki þreyta menn með frekari umr., en skal geta þess, að beztu meðmælin, sem ég gæti gefið þessum manni, væru þau, að ég léti myndir eftir hann ganga meðal þm., og myndi það þá bæta upp, hvað ég hefi talað lélega fyrir þessari till.