18.03.1940
Neðri deild: 20. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í B-deild Alþingistíðinda. (944)
74. mál, verðlag
*Finnur Jónsson:
Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir skýringar þær, er hann hefir gefið. Ég held þó enn, að fyrri og síðari hl. 9. gr. stangist á. Í fyrri hl. gr. segir, að bannað sé að hækka hundraðshluta álagningar fram yfir það, sem tíðkaðist fyrir 1. sept. 1939, en í síðari hl. segir, að þessu eigi að haga svo, að nettóágóði vegna verðhækkunarinnar fari ekki að upphæð fram úr því, sem tíðkaðist fyrir stríð, að viðbættu hæfilegu álagi vegna aukinnar áhættu og kostnaðar við sölu eða framleiðslu vörunnar. Þetta finnst mér ekki geta staðizt. Mér finnst þetta tæplega geta borið sig með þeirri vöruhækkun, sem nú er í landinu, þó að álagningin sé sú sama og áður. Ég er viss um, að hægt er að fara aðra hvora af þessum leiðum. Má vel vera, að nokkuð mætti breyta orðalagi þessarar gr., en eins og hún er orðuð nú getur þetta varla staðizt.