01.04.1940
Neðri deild: 27. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (956)
74. mál, verðlag
*Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson):
Í verðlagsnefnd eiga m. a. sæti fulltrúar verzlunarráðsins og landssambandsins og hafa tekið þátt í öllum undirbúningi þessa frv. Í þeim viðræðum hefir verið reynt að eyða allri tortryggni og fyrirbyggja, að hún skapist hjá þeim stéttum, sem þessir menn eru fulltrúar fyrir.
Út af því, sem hv. þm. (TT) sagði um samvinnu í ríkisstj., vildi ég segja, að það er ekkert tilefni til þess að álíta, að hún geti ekki tekizt eins vel og verið hefir. Engar meiri háttar stjórnarákvarðanir hafa verið teknar án þess að ræða um þær sameiginlega, og alls engin ástæða er til slíkra ummæla í sambandi við verzlunarmálin sérstaklega. Ég kunni ekki við þann gamla tón, sem mér virtist hv. þm. vera að taka upp um þetta.