01.04.1940
Neðri deild: 27. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í B-deild Alþingistíðinda. (958)

74. mál, verðlag

Thor Thors:

Ég vil taka það fram út af síðustu ræðu hæstv. viðskmrh., að ég viðhafði ekki neinn sérstakan tón í ræðu minni og tilætlun mín var ekki að bera fram ásakanir í hans garð viðvíkjandi samvinnu í ríkisstj. yfirleitt. Það gleður mig mjög, ef skilja má orð hans eins og ég skil þau, að í verzlunarmálum geti tekizt ákjósanleg samvinna og gætt verði í því og öðru hófsemi og sanngirni.