05.04.1940
Efri deild: 30. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í B-deild Alþingistíðinda. (965)
74. mál, verðlag
*Frsm. (Ingvar Pálmason):
Um frv. þetta þarf ekki mikið að segja. Það er flutt í Nd. eftir tilmælum hæstv. ríkisstj. og er byggt á núgildandi l. um þetta efni með lítilsháttar breytingum. Í Nd. voru gerðar nokkrar breyt. á frv., en þær skipta þó ekki máli. Verður að telja, að á meðan það ástand, sem nú er, ríkir um breytingar á öllu verðlagi á útlendum vörum, verði ekki hjá því komizt að hafa örugga lagasetningu um þessi efni. Allshn. telur ekki ástæðu til þess að breyta frv. verulega, sérstaklega þegar þess er gætt, hver þörf er á, að slíkar lagasetningar séu sem fullkonmastar. Nú er komið fast að þinglokum, og ef breyt. væru gerðar á frv. nú, gæti það orðið til þess, að málið dagaði uppi. N. vill ekki gefa tilefni til þess og leggur því til, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það liggur fyrir. Það skal þó tekið fram, að ef frv. hefði verið hér fyrr á ferðinni, myndu ýmsir nm. ef til vill hafa viljað gera breyt. við einstakar gr. þess, en af þeim ástæðum, er ég skýrði frá áðan, féllu þeir alveg frá því.