30.04.1941
Sameinað þing: 11. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í B-deild Alþingistíðinda. (101)

Rannsókn kjörbréfs

forseti (HG) :

Mér hefur borizt eftir farandi bréf frá forseta Nd.:

„Alþingi.

Neðri deild, 29. apríl 1941.

1. landskjörinn þingmaður, Brynjólfur Bjarnason, hefur í dag ritað mér á þessa leið :

„Með því að 4. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, hefur, eins og kunnugt er, verið tekinn höndum og fluttur úr landi, leyfi ég mér hér með fyrir hönd Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins að skýra yður, herra forseti, frá því, með skírskotun til 144. gr. kosningalaganna, að flokkurinn óskar þess, að varamaður Einars Olgeirssonar, Jóhannes úr Kötlum, taki sæti hans í þinginu, meðan hann er fjarstaddur.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt, með ósk um, að þér boðið sem skjótast til fundar í sameinuðu þingi til þess að rannsaka og bera upp til samþykktar kjörbréf varamanns.

Jörundur Brynjólfsson.

Forseti sameinaðs þings“

Varamaðurinn mun vera mættur hér á þingi, og kjörbréfanefnd verið afhent kjörbréf hans til rannsóknar.