11.06.1941
Neðri deild: 76. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)
167. mál, ríkisstjóri Íslands
Pétur Ottesen:
Þegar hér var til umr. þáltill. um það að hleypa ríkisstjóra Íslands af stokkunum, greiddi ég atkv. á móti þeirri till. Ég gerði það af því, að ég sá ekki, að í því fælist neitt öryggi fyrir land og þjóð eins og ástatt er, og ég held, að sú reynsla, sem við höfum fengið á því ári, sem liðið er, síðan við byggðum upp ráðstafanir okkar í þessu efni, hafi ekki gefið neitt tilefni til, að við færum að gera aðrar bráðabirgðaráðstafanir en þær, sem þá voru gerðar. Þessi skoðun mín hefur að engu breytzt, síðan sú þáltill. lá hér fyrir, og þess vegna er afstaða mín til þessa máls sú sama og áður, sem sé, að ég mun greiða atkv. á móti þessu frv. Mér finnst, að úr því að ekki gat fengizt samkomulag um að stíga sporið til fulls á þessu þingi og gera þá skipan á stjórnarháttum landsins, sem ein átti við það ástand, sem við búum við, og er eðlileg afleiðing af því, að við tókum þessi mál að fullu og öllu í okkar hendur, sem sé að ganga endanlega frá því máli, þá væri ekki ástæða til að vera að bæta neinum nýjum liðum inn í þessar bráðabirgðaráðstafanir.
Ég hef gert þessa almennu grein fyrir afstöðu minni til þessa máls, og vil ég þá aðeins víkja nokkrum orðum að ræðu hæstv. forsrh., að því er lýtur að fyrirhuguðum bústað þess nýja ríkisstjóra.
Það virðist svo, að hæstv. forsrh. sæki það ákaflega fast, að svo verði ákveðið, að bústaður ríkisstjórans verði ákveðinn á einum sérstökum stað, sem sé Bessastöðum. Að vísu er svo að orði kveðið í þessu frv., að ríkisstjóri skuli búa í Reykjavík eða næsta nágrenni, og sömuleiðis
er svo til orða tekið í brtt., sem hæstv. forsrh. flutti vegna þessarar ráðstöfunar við fjárl., sem sé að veita ríkisstjórninni heimild til að kaupa bústað handa ríkisstjóranum í Reykjavík eða næsta nágrenni: Þetta er orðað þannig, að bæði samkvæmt fjárlagaákvæðinu og þessu frv. gæti verið um að ræða Reykjavík og hvaða stað sem er í næsta nágrenni hennar. En hæstv. forsrh. hefur tekið af allan vafa að því er hann snertir um þetta atriði, því að svo framarlega sem hann fær til þess heimild frá Alþingi, ætlar hann ekki að ákveða ríkisstjóra bústað í Reykjavík, og að því er snertir búsetu hans utan Reykjavíkur, þá er hann ekki í neinum vafa um, hvar hann vill, að hann eigi að sitja. Hann á að sitja á Bessastöðum, og hvergi annars staðar, svo að hér er um það að ræða, að ríkisstjórinn sitji á þessum stað, svo framarlega sem Alþingi veitir þá heimild, sem felst í 10. gr. þessa frv., sem Alþingi í raun og veru hefur samþ. með þeirri brtt., sem samþ. var við fjárl. Það er því ekki að undra, þó að hæstv. ráðh. tali hraustlega í þessu máli, þar sem hann er í raun og veru búinn að fá vilja sinn samþ. í sambandi við fjárl., og enginn vafi leikur á, að þessi ákvæði 10. gr. verða látin standa eins og þau eru nú í frv., og þá er ekki heldur vafi, hvernig hæstv. ráðh. ætlar að nota þau, því að hann hefur sagt skýrt og skilmerkilega, hvernig hann ætlar að nota þessa heimild, svo að það er ekki hægt að ásaka hann fyrir, að hann gangi ekki hreint til verks. Hitt er annað mál, hvort þetta er heppilega ráðið af hæstv. forsrh. og þeim, sem standa að því með honum, — a. m. k. finnst mér það mjög orka tvímælis.
Mér finnst, að þegar við Íslendingar ætlum að fara að byggja upp sjálfstæði okkar, þ. e. a. s. stjórnarskipun okkar, sem byggð er upp í algerlega sjálfstæðu landi, þá beri okkur í því efni að haga okkur eins og skynsamir og praktískir menn. Það reynist alstaðar dýrt að bera uppi fullt sjálfstæði. Það er stór kostnaðarliður hjá hverri sjálfstæðri þjóð, þó að sjálfstæðisþráin sé miklu sterkari en svo, að mönnum detti í hug að horfa í það, þó að þurfi að leggja í nokkurn kostnað til þess að fullnægja þessari sterku og eðlilegu mannlegu þrá. Hins vegar verður ævinlega að gæta þess í þessum efnum að rasa ekki fyrir ráð fram, sérstaklega fyrir okkur Íslendinga, sem erum ekki nema 120 þús. menn, sem byggjum þetta land. En aðstaða okkar er þannig í verzlun og viðskiptum, að við þurfum að tryggja hana í flestum heimsálfum og mörgum löndum, og þar af leiðandi hlýtur það að hafa allverulegan kostnað í för með sér. Hjá þessu verður ekki komizt að því er snertir viðskipti okkar við önnur lönd. En heima fyrir höfum við þetta ákaflega mikið á okkar valdi, svo að það getur hreint og beint riðið á því, hvort okkur reynist fært að bera uppi sjálfstæði okkar, að við högum okkur eins og skynsamir menn í þessu efni og reisum okkur ekki hurðarás um öxl.
Mér virðist, hvað þessar ráðstafanir snertir, að langeðlilegast hefði verið að leysa þetta mál með þeim hætti, að sá bústaður, sem ríkið á hér í Reykjavík, þar sem forsrh, hefur búið og séð um móttökur erlendra gesta fyrir landsins hönd, þar sem aðstaða hefur verið til að taka á móti erlendum gestum á þann hátt, sem sæmdi gestrisni hinnar íslenzku þjóðar, — mér hefði fundizt eðlilegasta leiðin og skynsamlegasta, þegar kemur annar maður, sem sé ríkisstjórinn, sem á að taka að sér þennan starfa forsrh. landsins, að hafa ekki meira við en svo, að hann fengi bústað forsrh., en hæstv. forsrh. væri séð fyrir öðrum bústað, sem honum væri fullkomlega við hlítandi, og þó að hinir ráðh, verði sjálfir að sjá sér fyrir bústað, þá hefði ég talið eðlilegt, að honum hefði verið borguð húsaleiga fyrir þann bústað, sem honum hefði verið fenginn í sambandi við þessa breyt. Þetta álít ég, að hefði verið mjög skynsamleg till. og mjög við hæfi fjárhagsgetu þessarar þjóðar, og engri rýrð slegið á okkar unga sjálfstæði, þó að ekki hefði verið gengið lengra en þetta. En þar sem nú virðist ákveðið, að ríkisstjórinn skuli búa á Bessastöðum, þá vil ég athuga í sambandi við það, hvort ekki verði dýrara að láta hann búa þar, því að við skulum ekki loka augunum fyrir því, að sá eðlilegi gangur þessa máls verður sá, að þrátt fyrir þennan bústað á Bessastöðum verður ríkisstjórinn í mörgum tilfellum, kannske flestum tilfellum, að hafa aðstöðu til að vera í Reykjavík og taka þar á móti erlendum gestum og öðrum gestum, sem hann þarf að taka á móti fyrir ríkisins hönd, auk þess sem hann verður að hafa þar skrifstofu. Mér virðist því, að með þessu sé lagður grundvöllurinn að tvöföldum óþarfakostnaði að því leyti, sem þetta snertir, sem mér virðist, að spái illu og slær óhug á mig við framkvæmd á sjálfstæði okkar, þegar við tökum það formlega og endanlega í okkar hendur. Ég vil þess vegna mjög nota þetta tækifæri til þess að vekja athygli á, að við þetta fyrsta spor, sem við erum nú að stíga, gætum við fyllstu varfærni. Ég vil láta þetta koma hér fram og þykir mjög leitt, af því að ég eins og aðrir hef þráð það mjög, að við getum fengið fullt sjálfstæði í okkar hendur og getum byggt það upp, að við gerum það á skynsamlegan hátt og með það fyrir augum, að við séum menn til að bera uppi þann kostnað, Sem leiðir af sjálfstæði okkar. Ég er sannfærður um, að í augum allra skynbærra manna í hvaða landi sem er, sem þurfa að hafa viðskipti við okkur, verður það okkur frekar til heiðurs, ef við förum þannig með sjálfstæði okkar, að við séum ekki að tildra okkur þannig upp, að það sé umfram fjárhagsgetu okkar.
Jafnframt því sem hæstv. forsrh. hefur gefið í skyn, að aðstaða á Bessastöðum sé mjög góð að því er húsakynni snertir, — reynslan sýnir það ef til vill síðar, hvort ekki þykir þörf umbóta þar —, þá hefur hann mjög lagt sig fram að gera lítið úr þeim húsakynnum í Reykjavík, sem stj. hefur fengið heimild til öðrum þræði að kaupa í þessu skyni, Bindindishöllina svo kölluðu við Fríkirkjuveg. Hann gerir mjög lítið úr því og yfirleitt því umhverfi, sem þetta hús er reist í. Hæstv. ráðh. lét í ljós undrun sína yfir þeim blaðaskrifum, sem komið hefðu fram um þessa hlið málsins. Ég skal engan dóm leggja á þau. En þó verð ég að segja, að ég varð undrandi, sennilega upp á sama máta og hæstv. forsrh. um það, hvaða lýsingu hann gaf á umhverfi, sem þetta hús hér í Reykjavík er í. Hann talaði um það sem alveg útilokað, að ríkisstjórinn byggi nálægt íshúsi og unglingaskóla, þ. e. kvennaskólanum. Ég verð að segja, að það er óþarfi fyrir okkur að líta neitt smáum augum á íshúsin og þá starfsemi, sem er í samhandi við þau, sem er einn máttarviður atvinnulífs okkar, og við þurfum ekki heldur að tala neitt lítilsvirðandi um skólana, sem vinna að því að halda uppi andlegri menningu okkar. Og ef þessi fyrirhugaði ríkisstjóri á hvergi að vera, þar sem neitt minnir á atvinnulíf eða menningu, hvar á þá að velja honum stað? Hann er þá ekki ætlaður fyrir Ísland eða Íslendinga, því að á lífsskilyrðum atvinnuvega okkar og menningar grundvallast tilvera okkar, fjárhagslegt og menningarlegt sjálfstæði. Því get ég ekki á neinn hátt fallizt á, að það sé ríkisstjóranum neitt til óvirðingar, þó að hann ætti að búa nálægt íshúsi, sem er einn af hyrningarsteinum atvinnulífs okkar, eða í grennd við skóla, undirstöðu andlegrar menningar okkar. Nei, hér er of langt gengið til þess að koma því til leiðar, að Bessastaðir skuli valdir til bústaðar ríkisstjóra. Að því er snertir kostnað við byggingu á þessu húsi. þá hef ég heyrt talað um nokkru lægri upphæð en þessi 304 þús., og það mun hafa verið að nokkru leyti vegna þess, sem hæstv. fjmrh. greip áðan fram í, en ég þekki það ekki svo, og vel getur verið, að breytingin á húsinu mundi kosta allmikið fé, og get ég vel gengið inn á, að sú upphæð, sem hæstv. forsrh. nefndi í því sambandi, sé nærri lagi hjá honum. En að lóðin, sem þessu fylgir, sé ekki nægileg fyrir bústaðinn, get ég ekki fallizt á, því að það er mjög stór lóð, sem fylgir þessu húsi, blátt áfram mikið landrými, þegar borið er saman við, hvaða land fylgir húseignum hér. Það er spilda milli tveggja gatna, svo að hvaða höll sem er gæti rúmazt á þeirri lóð. Þegar um það var að ræða, að Góðtemplarareglan fengi þetta hús, sem ég tel mikinn skaða, að ekki fékkst samkomulag um, þá var gert ráð fyrir að byggja þarna til viðbótar sýningarsal, sem átti að rúma allt að 1000 manns, og þrátt fyrir það var talsvert landrými utan veggja, — svo stór er þessi lóð, sem þarna er um að ræða. En þó að ég segi þetta, þá tel ég langskynsamlegast og eðlilegast, að ríkisstjórinn fengi þann bústað, sem ríkið á og hæstv. forsrh. býr nú í, án þess að í því þyrfti að felast nokkur niðrun fyrir hæstv. forsrh., því að ég hefði talið skylt og sjálfsagt, að þingið sæi honum fyrir öðrum mjög sæmilegum bústað.
Ég skal svo ekki orðlengja meira um þetta mál. Hæstv. forsrh. segir, að rétt væri að koma með brtt. um að taka út orðin „eða næsta nágrenni“, en ég segi fyrir mig, að af því að ég vil ekki vera með neinar tilgangslausar till. hér á þingi, þá mun ég ekki bera fram slíka brtt., — mér finnst það ekki þýða neitt, þar sem samþ. var till. forsrh. við fjárl., eftir að hann hafði lýst yfir, að hún þýddi það, að Bessastaðir yrðu keyptir handa ríkisstjóranum. Ég sé því ekki annað en að tilgangslaust væri að bera fram þessa brtt. við frv., því að hún mundi að sjálfsögðu, í samræmi við þá samþykkt, sem gerð var í Sþ. fyrir tveimur eða þremur dögum, verða felld.