11.06.1941
Neðri deild: 76. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (1082)
167. mál, ríkisstjóri Íslands
Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Ég vil svara fyrirspurnum hv. 3. þm. Reykv. Fyrst var fyrirspurn hans um konungsmötuna: Ég get ekki svarað þessu nú, því að þetta hefur ekki verið rætt svo ýtarlega í ríkisstj., að ég geti á þessu stigi málsins svarað fyrir hönd allrar stj. En ég geri ráð fyrir, að stj. fari í þessu sem í öðrum efnum eftir vilja þingsins.
Þá var spurt um það, hvort risnufé til ríkisstjóra yrði ákveðið þannig, að ríkisstjóri yrði látinn gefa reikning um kostnað hverrar veizlu. Hefur verið gert ráð fyrir, að svo yrði fyrst um sinn, til þess að hægt væri að fá nokkra hugmynd um það, hver upphæð væri hæfilegt risnufé.
Um söluverðið á Bessastöðum er það að segja, að ég hef óskað eftir því að fá upplýsingar um þetta, en ekki fengið þær. En ég tel víst, að hægt sé að fá staðinn fyrir sæmilegt verð. Og svo mikið er víst, að á þessa eign verður ekki lagður einn eyrir, og get ég fullvissað hv. þm. um þetta, þó að ég hafi ekki fengið nákvæmar tölur í hendur.
Þá var spurt, hvort það væri rétt, að ráðh. hefði fengið áfengi og tóbak tollfrjálst vegna risnu, því að flestir ráðh. nota þessar vörutegundir í þeim tilgangi. Það er rétt, að ráðh. hafa um nokkur ár fengið þessar vörur með kostnaðar verði, og hefur ekkert verið lagt á þær nema nokkur kostnaður af áfengissölunni. Ég býst við, að þingið sé á einu máli um, að laun og risnufé ráðh. sé ekki svo ríflegt, að rétt sé, að þeir greiði toll úr eigin vasa ofan á risnuna. Að minnsta kosti geta þeir menn, sem langar til að sannfæra sig um það, séð það, þó að ég sé hvorki reykingarmaður eða drykkjumaður, hvað hefur verið keypt af áfengi og tóbak fengið í tóbakseinkasölunni á einu ári fyrir forsrh. í ofanálag á það, sem ég hef borgað fyrir þetta úr eigin vasa. Og tel ég það ekki mikið, Þó að ég hafi ekki, þurft að borga toll á vöruna ofan á annað, sem ég hef greitt til risnu úr eigin vasa.
Ég get upplýst það að gefnu tilefni, að ég hef tapað nær 30 þús. króna á því að vera í ráðherrastarfinu. Og ég býst ekki við, að ég eigi eftir að vera svo lengi í starfinu, að ég þoli ekki það tap, sem ég á eftir að hafa af því. Sé ég þó ekki ástæðu til, að það sé rétt, að ég greiði toll í ofanálag á það.