11.06.1941
Neðri deild: 76. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (1086)
167. mál, ríkisstjóri Íslands
Sigurður Kristjánsson:
Ræður hv. þm. hafa snúist um eitt atriði, það atriði, sem ég í upphafi ræðu minnar við þessa umr. taldi aðalatriði málsins, því að náttúrlega er kjarni málsins, eins og hv. 3. þm. . Reykv. benti á, hvernig sjálfstæðismálið var afgr., þannig, að það er þess vegna, sem þetta frv. um ríkisstjóra er fram komið. En fyrst nú svo er komið sem komið er, þýðir ekki um það að ræða, og ég skal þá ekki heldur gera það, en ég hef nokkrar aths. að gera við það, sem hér hefur komið fram í umr. um bústað væntanlegs ríkisstjóra. Ég var að vísu ekki viðstaddur, en mér er sagt, að hæstv. forsrh. hafi gefið yfirlýsingu um það við atkvgr. fjárl., að hann mundi skoða till. stj. um það, að kaupa húseignina nr. 11 við Fríkirkjuveg sem samþykkt þingsins fyrir því, að Bessastaði mætti kaupa, ef brtt. stj. yrði samþ., m. ö. o. þyrfti aðeins orðalagsbreyt. til þess að ríkisstj. væri heimilt að kaupa annaðhvort Fríkirkjuveg 11 eða Bessastaði.
Ég er hæstv. forsrh. sammála um það, að það er ekki sérstaklega glæsilegt að fara að kaupa húsið við Fríkirkjuveg 11, það er ekki glæsilegt að fara að kaupa alveg óundirbúið og í skyndi gamla húseign í þessu skyni. Þó að hæstv. forsrh, andmælti mínu máli um Bessastaði, aðallega með samanburði við Fríkirkjuveg 11, þá verður það aldrei eitt saman sagt til meðmæla með því að kaupa Bessastaði. Ég er sannfærður um það, að sú leið, sem þeir hv. þm. Borgf. og A.-Húnv. hafa hér bent á, hæfði miklu betur þessu millibilsástandi, sem nú ríkir. Ég er sannfærður um það, að hvor þessara eigna sem keypt yrði, verður kostnaðurinn gífurlegur við að gera hana þannig úr garði, að hún hæfi slíkum valdamanni sem ríkisstjóra. Ég er sannfærður um það, að báðir þessir staðir eru mjög óheppilegir, einkum þó Bessastaðir, og það mundi koma að því, að það yrði samt sem áður að byggja nýjan forsetabústað, þó að annar hvor þessi staður yrði nú keyptur sem bústaður fyrir ríkisstjórann.
Ég vildi láta þetta koma fram, svo að sá misskilningur stæði ekki, að ég sé sérstaklega að halda fram húsinu við Fríkirkjuveg 11; a. m. k. hef ég ekki trú á því, að þau kaup yrðu hagkvæm hvað kostnaðinn snertir: Það er enn óupplýst, hvað það mundi kosta að kaupa Bessastaði og gera þá þannig úr garði sem þeir þurfa að vera til þess að geta orðið bústaður ríkisstjóra. Ég hef heyrt, að Fríkirkjuv. 11 mundi kosta um 150 þús. kr., eða jafnvel 300 þús. kr. Þetta álít ég ekki vera þýðingarlaust, og mig undrar það, að jafnvel á þessum tímum skuli menn tala um svona hluti eins og það væri hégómi. Það er eiginlega hryggilegt, að þegar við eigum að taka ákvörðun um sjálfstæðismál þjóðarinnar, þá skulum við vera svo smástígir, að við erum eins og hræddir krakkar og kiknum í hverju spori, en þegar á að fara að velja bústað fyrir þennan mikla valdamann, ríkisstjórann, þá er sama, þó að sá bústaður kosti ½ millj. kr., það þarf ekki að hugsa sig neitt um það.
Ég hef ásamt hv. þm. Ak. borið fram brtt. við 10. gr. frv., og það er ekki fyrir það, að ég viti það ekki með vissu, að áður en Bessastaðir komu inn í þetta, þá hafi verið búið að tryggja það að fá meiri hl. þingsins til þess að fylgja því, ég efast ekki um, að það hafi verið svo. En ég tel samt alveg rétt að reyna þingviljann, eins og hæstv. forsrh. komst að orði, um það, hvort menn vilja einskorða þetta við Bessastaði.
Hæstv. fjmrh. talaði um það, að það væri ekki rétt að leggja fæð á einstaka staði fyrir það, sem þar hefði skeð. Þetta er náttúrlega alveg rétt, að það er ekki rétt að leggja fæð á staði fyrir það, hvað þar hefur skeð, en það er ekki hægt að slá niður tilfinningar, sem eru bundnar við sérstakt kúgunartal, sem um þessa staði hefur orðið. Það er ekki hægt að má úr hugum manna þær tilfinningar, sem bundnar eru við lífsstríð þjóðarinnar, með því að viðhafa slagorð. Það er vitað, að þessi staður hefur enga fegurð til að bera, nema í fjarska, enda er þarna að mestu leyti óaðlaðandi móaland.
Það er ekki heldur hægt að neita því, að við þennan stað eru bundnar ömurlegar minningar. Þar hefur erlent vald drottnað og beitt kúgun og ofbeldi, og ef menn halda, að það sé hægt að afmá þetta úr hugum manna, svo að menn sækist eftir því að velja þessa staði til þess að
líta upp til, þá er það hinn mesti misskilningur. Hitt er miklu nær sanni, þegar menn sjá í því enga hagsýni, en telja það samt eftirsóknarvert að binda mestu völd landsins við þennan stað, að það stafi af því, að það séu komin þau elliglöp á menn, að þeir hafi ekki æskilega tilfinningu fyrir þjóðernislegum og þjóðfélagslegum málum. Ég er alveg sannfærður um það, að sú ráðstöfun að færa æðsta vald landsins til Bessastaða, þó ég telji það ekki neitt höfuðatriði, mælist ekki vel fyrir og snertir almenning heldur illa. Einnig er ég sannfærður um hitt, að tilfinningin fyrir sjálfstæði landsins og því sem er þjóðræknislegt, er miklu ríkari í brjóstum alþýðu manna um allt land heldur en hún er yfirleitt hjá þeim mönnum, sem eru búnir að fá á sig einn andlegan skrokk af ýmsum áhrifum, bæði hér á hv. Alþ. og annars staðar.
Ég skal ekki hafa þetta mál mitt lengra, en það er þó eitt atriði í sambandi við þá ræðu, sem hv. 3. þm. Reykv. flutti hér, er hann lýsti yfir, að hann mundi greiða atkv. með frv., þó að hann hefði verið á móti tilefni þess, þá vil ég út af þessum orðum hans gefa þá yfirlýsingu, að ég ætla að greiða atkv. á móti þessu frv. Það stafar af því, að ég er sannfærður um það, að ef við fengjum ekki ríkisstjóra nú, þá mundi þetta millibilsástand, sem til var stofnað, verða skemmra heldur en annars hefði orðið. — Ég álít, að það sé mjög háskalegt og særandi fyrir okkur Íslendinga, ef það ástand á að haldast til næsta þings eða næsta sumars, að við eigum einnig að búa við yfirlýsingu um það, að við getum tekið sjálfstæði landsins í okkar hendur, en gerum það ekki á borði.