12.06.1941
Efri deild: 77. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í B-deild Alþingistíðinda. (1094)

167. mál, ríkisstjóri Íslands

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Ég tel mig ekki þurfa að hafa neina verulega framsögu fyrir þessu máli. Það hefur verið samþ., að Alþ. kjósi ríkisstjóra nú á næstunni, og hér eru sett ákvæði um, hvernig hann skuli kosinn, hver séu kjörgengisskilyrði, og um réttindi hans og skyldur, laun og búsetu, og enn fremur hverjir eiga að gegna starfi hans, ef hann fellur frá. Ég hygg það sé ekki margt í þessu frv., sem geti valdið ágreiningi, a. m. k. ekki við þessa umr. Óska ég eftir, að málinu verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og allshn.