12.06.1941
Efri deild: 77. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í B-deild Alþingistíðinda. (1095)
167. mál, ríkisstjóri Íslands
Jónas Jónsson:
Ég ætla aðeins að bæta fáeinum orðum við, sérstaklega út frá umr. í hv. Nd. Þar kom fram till. frá hv. þm. Mýr. um það að setja bráðabirgðaákvæði í 1. í þá átt, að tilvonandi ríkisstjóri taki við embætti sínu 17. júní. Ég ætla aðeins að geta um það hér, að ég hef hugsað mér að taka upp þessa till. fyrir 2. umr., og vonast eftir, að henni verði vel tekið. Það liggur ekkert í henni annað en það að reyna að auka veg þessa embættis með því að tengja það á þann hátt við Þennan merkilega hátíðisdag.