14.06.1941
Efri deild: 79. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (1108)

167. mál, ríkisstjóri Íslands

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Það hefur verið álitið, að óþægilegt sé að ná til ríkisstjórans á Bessastöðum, vegna fjarlægðar. Við höfum haft þjóðhöfðingja um nokkurra alda skeið, sem hefur búið í öðru landi, en nú geta menn ekki unað því að hafa þjóðhöfðingja, nema helzt í næsta húsi. En til Bessastaða er fjarlægðin ekki meiri en fjarlægð innan bæja erlendis, þar sem þjóðhöfðingjar búa í bæjum. Og viðvíkjandi því, að stundum sé sérstaklega erfitt að komast þangað, þá er það að segja, að það eru stundum svo miklir skaflar á götum Reykjavíkur, að ekki er hægt að komast á bifreiðum nema að moka þá skafla. Þetta er ákaflega sjaldgæft, af því að það er snjólétt á þessum nesjum. Og það er vitað mál, að það kemur næstum aldrei fyrir, að ekki sé fært á bifreiðum suður um nes. Ég er þeirrar skoðunar, að val þessa staðar sé ekki nema eðlileg fyrirhyggja um bústað æðsta manns ríkisins. Það er auðsætt, að hann á ekki að búa annars staðar en þar, sem verulegt rúm er kringum bústað hans. Og við höfum ekki getað valið til bráðabirgða annan stað en Fríkirkjuveg 11, en það er ekki staður til frambúðar, um það virðast allir á einni skoðun. Ég hef ekki séð annan hugsanlegan stað en hér fyrir innan bæinn, inni hjá Sunnuhvoli. Þó að við spornum við því, að bærinn stækki mjög, er vitað, að Reykjavík er svo stór nú, að aðeins með eðlilegri fólksfjölgun, um 700–1000 manns á ári, hlýtur bærinn að stækka þannig, — og við sjáum, hvert hann vex, suður með sjó —, að það líða ekki mörg ár, a. m. k. ekki margir áratugir, þangað til Bessastaðir eru orðnir einn staður í bænum Hafnarfjörður-Reykjavík.

Við, sjáum það allir, hvað bærinn stækkar ört. Það þótti fyrir nokkru ákaflega langur göngutúr — segja mér þeir; sem þá voru ungir — að ganga inn á Hlemm: það er hjá gasstöðinni. Það hefur sagt mér Ingibjörg Jensdóttir, að þegar hún fór að búa á Laufásvegi 38, hafi einhverjum orðið á að segja, að þetta kerlingarskass vildi ekki búa í bænum, heldur langt fyrir utan hann! Þá var Laufás bújörð utan við Reykjavík. Með því samgöngutækjaleysi, sem þá var, var Laufás því tiltölulega allt að því eins fjarri Reykjavík og Bessastaðir eru nú. Vegir fara nú stórbatnandi, og það er búið að steypa og malbika veg langt áleiðis suður að Bessastöðum. Innan skamms verður kominn malbikaður vegur milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar eins og beztu götur í bænum. Það býr þess vegna ekki undir hjá mér að vilja flytja bústaðinn út fyrir Reykjavík, því að ég lít svo á, að Bessastaðir séu svo nálægt Reykjavík, að þeir tilheyri hverfi Reykjavíkur, ef svo mætti segja. Og það mun sannast, að ekki verður langt þangað til hér verður byggð á milli, enda sér hver maður, sem fer um Fossvog og Kópavog, að þessi byggð er þegar hafin, þótt í öðru formi sé en síðar verður. Það liggur þess vegna ekki í minni afstöðu nokkur óvild gagnvart Reykjavík, fjarri því. En ég held mér yfirsjáist ekki í því, að það sé ekki heppilegt að hafa endilega í allra næsta nágrenni þann mann, sem er æðsti valdsmaður þjóðarinnar, sem við eigum að geta treyst til að líta hlutlaust á öll mál, án þess að bönd kunningsskapar og allt of mikillar nær veru trufli hann í þeirri dómgreind. Og ég held það sé gott, að hann sé í huga þjóðarinnar ekki eins og hver annar borgari inni í bæjarþrönginni.

Viðvíkjandi því, hvort Bessastaðir verða fyrir valinu eða ekki, fer eftir þeim vilja, sem þingið lætur í ljós, því að fyrir honum verðum við ráðherrarnir að beygja okkur.