14.06.1941
Efri deild: 80. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í B-deild Alþingistíðinda. (1114)

167. mál, ríkisstjóri Íslands

Magnús Jónsson:

Till. þessi er ákaflega einföld. Hún er því miður ekki komin á prent, en hún er ekki um annað en það, að í staðinn fyrir, að ríkisstjórinn skuli hafa aðsetur í Reykjavík, komi, að aðsetur hans skuli vera í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur.

Ég mælti fyrir þessari till. hér við 2. umr. málsins. Mér finnst alls ekki fært, að ákveðið sé, að bústaður ríkisstjórans skuli vera í bænum sjálfum, en ég vildi, að hann yrði í næsta nágrenni, og með því að ákveða lögsagnarumdæmi Reykjavíkur er átt við það svæði, sem búast má við, að bærinn nái yfir á næstunni og samgöngur eru að jafnaði góðar við.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að orðlengja þetta frekar, en tel rétt, að atkvgr. skeri úr um þetta mál.