05.06.1941
Efri deild: 72. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í B-deild Alþingistíðinda. (1137)

18. mál, áfengislög

Jónas Jónsson:

Þetta mál er að vissu leyti nýtt hér í deildinni, en þó hygg ég það rétt hjá hv. 2. landsk. (SÁÓ), að umræður um ölið hafi verið hér á sveimi undanfarin ár. Ég lít svo á, að málið, sem hér liggur fyrir, sé ákveðinn liður í því, að teknar verði upp umr. um aðalmálið, bruggun áfengs öls í stærri stíl hér á landi. Þetta er fyrsta skrefið í þá átt. Úr því að málið kemur hér til meðferðar, álít ég rétt að líta á það frá nokkru hærra sjónarmiði. Ég er að vísu sammála hv. 2. landsk. um það, að áfengisnautn Íslendinga er afar mikið böl. Það lítur út fyrir, að þjóðin sé fram úr lagi hneigð til áfengra drykkja. Bæði kostar þetta mikið fé og veldur erfiðleikum sakir þess, hve þjóðin kann illa með vín að fara eða að hegða sér á almannafæri. Þetta sýnist hafa fylgt kynstofninum gegnum aldirnar. Skoðanir skiptast um það, hvort rétt sé að reyna að útiloka allt áfengi með valdboði og gera menn þannig fráhverfa því, er þeir ná því ekki nema með erfiðleikum og illum ráðum, eða láta sér nægja bindindisleiðina. Það var ákaflega eðlilegt, að góðtemplarar, en til þeirra mun hv. 2. landsk. teljast með heiðri og sóma, ynnu mjög á árin 1880–1908 og sæju sér, er á leið, færi á að reyna hér aðflutningsbann áfengra drykkja. Þegar þeir lögðu út á þá braut, verð ég að segja,, að það var nokkuð stór hugsjón og nokkuð djörf. En til þess að átta sig á málinu verður að líta á, hvernig þetta hefur gefizt.

Bannmenn höfðu meiri hl. með sinni skoðun á Alþingi 1908. Sá maður, sem þá var ráðherra, hafði það mikla trú á þessu, að hann tók bannmálið fram yfir stjórnarskrármálið, sem þó hafði þá verið kosið um til Alþingis. En þótt bannmenn hefðu meiri hl. við kosningarnar, kom það fram, að áfengið hafði svo sterk ítök í þjóðinni, að þeir gátu ekki hindrað, að framkvæmd 1. yrði spillt. Eftir nokkra stund knúði læknastéttin það fram, að hún mætti nota alls konar vín í lækningaskyni, nema e. t. v. öl. Nokkur hluti þeirrar stéttar hélt ásamt þeim, er áttu birgðir frá fyrri árum, uppi möguleikum til þess, að Íslendingar gætu fullnægt þessari sterku löngun sinni. Of stór hluti þjóðarinnar vildi ná í áfengið, þar á meðal margt embættismannanna. Bandaríkjamaður, sem hér kom, lét svo um mælt, að ómögulegt væri að láta bann haldast í landi, þar sem embættismennirnir væru á móti því. Þá kom að því, að Spánverjar settu hnífinn á hálsinn á Íslendingum og sögðu: Annaðhvort verðið þið að kaupa af okkur vín eða við hættum að kaupa af ykkur fisk. En það gerðist ekki annað en það, sem mundi hafa gerzt af sjálfu sér eftir nokkur ár. Þetta tók samt steininn úr. Og það var drukkið í landinu fyrir millj. króna. Síðan hafa verið gerðar eindregnar og ákveðnar tilraunir í þá átt að útrýma vínnautninni, en það hefur ekki reynzt unnt að gera það. Þegar tók fyrir læknabrennivínið og skipabrennivínið, kom bruggið til greina. Það, sem gerðist með hinni almennu atkvgr., var afleiðing af þessu. Bannmenn höfðu í raun og veru beðið ósigur. Meiri hluti þjóðarinnar vildi hafa áfengið, bruggið þróaðist úti um allt land, jafnvel í fjósum landsmanna var bruggað. Þá var það ráð tekið að leyfa alla sterka drykki, og eina vígið, sem skilið var eftir, var ölið. Nú hefur með stjórnarboði verið hallazt að því að leyfa tilbúning öls á takmarkaðan markað, sem raunar liggur fyrir utan hið íslenzka þjóðfélag.

Ég held ekki, að hv. 2. landsk. hafi gert sér það ljóst, að eftir þá reynslu, sem fengin er í áfengismálunum, er sú gamla skoðun dauðadæmd, að hægt sé að ráða við vínnautnina með lagaboðum. Það verður að gera með andlegum meðulum. Stefna hv. meiri hl. í þessu máli er vitanlega sprottin af góðum hvötum. En hv. meiri hl. getur verið viss um, að úr því að hér er drukkið á hverju ári fyrir 3 millj. kr. af öllum mögulegum tegundum, er ekki til neins að ætla að stöðva eina lindina með lagaboði, — þá einu, sem er hægt að framleiða hér.

Ég vil beina því til hv. 2. landsk., hvort honum er ekki kunnugt um, að áhrifamenn í hans flokki hafa starfað að því árum saman af einlægni, að hér yrði komið upp stórfelldri framleiðslu á öli, með það fyrir augum, að þetta yrði mikilsverð atvinnugrein fyrir Íslendinga. Ég ætla um leið að fara nokkrum orðum um það mál, því að það er stærra en málið, sem fyrir liggur. Ýmsir áhrifamenn hafa verið á verði um það undanfarin missiri, hvort ekki ætti að reyna að koma hér á nýjum iðnaði, ölgerð, og skapa fyrir hann markað erlendis. Út af þessu hafa verið gerðar rannsóknir á drykkjarvatni í Reykjavík, en það er bezta drykkjarvatn í veröldinni eftir því, sem margir halda fram. hví er ástæða til að ætla, að ölið yrði betri vara hér en ölið úr hinu hversdagslega vatni í Danmörku. Það væri vel hægt að hugsa sér, að bæði væri þetta stjfrv. samþ. og að hér yrði komið á stórfelldri framleiðslu til útflutnings, enda þótt ölbann væri í landinu sjálfu. Ef um mikla framleiðslu væri að ræða, t. d. eitthvað að tiltölu við Carlsberg í Danmörku, mundi það hafa litla þýðingu, þó að selt væri hér það, sem þjóðin kynni að vilja kaupa. Mér finnst, að hv. 2. landsk. gæti vel út frá sinni lífsskoðun sætt sig við, að bruggað væri öl handa setuliðinu og til útflutnings. Ég get ekki skilið annað en að einmitt hann, sem er fulltrúi fyrir verkamenn, mundi gjarnan vilja þá aukningu á atvinnu í landinu, sem af slíkum iðnaði mundi leiða.

Ég hef ekki mikla reynslu af öli sjálfur og finnst það eiginlega hvorki gott né vont. En ég man eftir, að erlendis hef ég rekizt á bjór frá Tékkóslóvakíu, sem mikið var flutt út af. Sá bjór bar það með sér, hvað vatnið í honum var hreint og loftkennt, og hann var fyrirtaksvara. Tékkóslóvakía hefur haft miklar tekjur af þessu öli og það hefur þótt bera af öðru öli.

Það er undarlegt, þar sem hv. 2. landsk. er ljóst, að Bretar mundu fá öl frá Englandi, ef þeir fengju það ekki hér, að hann skuli taka þessa afstöðu: Ekki getum við hindrað menn í stóru löndunum í að drekka öl. Spursmálið er, hvort við viljum hafa atvinnu af því hér á landi. Merkir menn í flokki hv. þm. hafa verið þeirrar skoðunar, að þetta væri æskilegt frá atvinnusjónarmiði. Þess vegna kemur mér það á óvart, að bæði hv. 2. landsk. og flokksbróðir hans í Nd. skuli vera á móti þessu frv.

Sú þraut, sem þarf að leysa í þessu sambandi, er uppeldislegs eðlis. Sú uppástunga, sem gerð var í einni n. hér á þ., að láta góðtemplara fá 50 þús. kr. sem gjöf í byggingarsjóð sinn, ber vott um skynsamlega íhugun. Á þá leið væri skynsamlegt að taka upp baráttuna þar, sem góðtemplarar byrjuðu hana 1880. Ég býst við, að þeir af borgurum landsins, sem sjá, að ekki er hægt að ráða við áfengisflóðið með lagaboðum, en að hins vegar þarf að lækna skaðann af því, áliti, að efla beri góðtemplararegluna til að koma sér upp góðum húsakosti á ágætum stað, þar sem salarkynni væru á þann veg, að þar gætu farið fram góðar og hollar skemmtanir og fræðslustarfsemi. Þar er sú rétta leið. Við verðum að viðurkenna, að bannleiðin hefur tapað hér á landi.

Ég vil óska eftir því að fá hjá aðalfrsm. meiri hl. upplýsingar um, hvort hann gæti ekki gengið inn á þann málstað, sem hæstv. forsrh. reifaði hér: að hafa allar tegundir til sölu, en hefja svo jafnframt kröftuga uppeldislega baráttu í þá átt, að vínnautn sé ekki úr hófi fram.