22.04.1941
Neðri deild: 42. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (1203)

62. mál, Búnaðarbanki Íslands

Einar Olgeirsson:

Hér er talað um að fara að koma upp einhverju bankaráði. Einu sinni var þó sú hliðin upp að fækka öllum n. og þessháttar, til þess að draga úr kostnaði. Hvers vegna á að fara að stofna eitthvert bankaráð? Það væri nógu gaman að fá upplýsingar um það. Hér hafa engin rök komið fram fyrir því. Er það af því að núverandi bankastjórn er ekki störfum sínum nógu vel vaxin? Eða kannske það sé af því, að hér eigi að fara að stofna nýja bitlinga? Ég hygg, að þetta sé hinn mesti óþarfi, og að bezt mundi fara á því að láta Búnaðarbankann óbreyttan. Hann hefur getað starfað bankaráðslaust hingað til. Ég get heldur ekki séð, að nokkur þjóðarhagur sé að bankaráði. Ég mun því greiða atkv. á móti því. — Það má vera, að þetta sé einkaþörf einhverra vissra manna, en áreiðanlega ekki annarra.

Þá er það enn fremur eitt, sem ég vildi gera athugasemd við. Það er viðvíkjandi því, að sameinaðar landbn. Alþ. eiga með hlutfallskosningu að kjósa viðkomandi bankaráðsmenn, Hvað á að þýða að draga úr höndum Alþ. það vald, sem því yfirleitt er þó fengið, þegar um svona er að ræða, og fara að setja það inn í einhverjar n., sem kosnar hafa verið? Eru menn orðnir svona hræddir við sameinað Alþ., að það megi ekki gera þær ráðstafanir, sem því ber að gera?

Er það kannske fjvn., sem á að kjósa bankaráðsmenn í Landsbankann bráðum? Ég veit ekki, hvar þetta ætlar að lenda. Ég sé ekki betur en að þetta sé öfugt við allt lýðræði. En tilgangurinn með því að kjósa n. eða ráð, sem 1. samkvæmt á að kjósa á opnum fundum í Sþ., er sá, að þm, fyndu til einhverrar ábyrgðar gagnvart þjóðinni og umbjóðendum sínum. En það á að flýja inn í einhver skúmaskot með þetta. Það er af því að þeir, sem að þessu standa, þora ekki að láta þjóðina sjá, hvað verið er að framkvæma. Þeir þora ekki að koma í dagsljósið með gerðir sínar.

Ég sé enga ástæðu til þess að koma þessu bankaráði á, en ef því er komið á, sé ég ekki, hvaða ástæða er til þess að kjósa það ekki á fundi í Sþ. Ég sé ekki einu sinni, hvaða ástæðu þjóðstj. hefur annars til þess að flýja frá Sþ. og í landbn., því að mér hefur sýnzt, að þeir, sem að henni standa, geti komið sér saman með fullkomnu baktjaldamakki að skipta á milli sín bitlingum, sem þeir skapa. Samvizka þeirra hlýtur að vera eitthvað athugaverð í þessum skollaleik og hlaupum inn í skúmaskot landbn.