25.04.1941
Efri deild: 44. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (1236)

76. mál, sandgræðsla og hefting sandfoks

Frsm. (Páll Zóphóníasson) :

Herra forseti! Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er komið frá Nd. Það barst landbn., sem tók málið til flutnings frá búnaðarþingi, en til búnaðarþings kom Það frá ríkisstj., sem hafði látið sandgræðslustjóra, búnaðarmálastjóra og Magnús Torfason fyrrv. sýslumann undirbúa málið.

Í frv. er gert ráð fyrir, að hægara sé um vik að taka til starfa og hefta sandfok en áður var. Áður var það svo, að það var nær útilokað nema með sérstökum l. í hvert skipti að hefta sandfok, nema fullt samkomulag næðist milli jarðareigenda og hins opinbera. En hér er gert ráð fyrir, að ráðh. sé heimilt, að fengnu áliti Búnaðarfélags Íslands, að taka land eignarnámi, sem er að blása upp, til þess að hefta sandfokið, enda komi fullar bætur fyrir og það fari fram samkv. l. um eignarnám. Það eru víða landsvæði, sem meira og minna liggja undir skemmdum vegna sandfoks, en einstaklingar hafa ekki opin augun fyrir að gera ráðstafanir til að hefta sandfokið, meðfram af því, að þótt sandfok sé á því, þá er landið notað til beitar, sem eigendurnir telja sig ekki geta misst. Annað aðalatriði frv. er það, að hið opinbera geti fylgzt með því og gert sínar ráðstafanir, ef hætta er talin á sandfoki vegna ofbeitar á land. Það er gert ráð fyrir, að sandgræðslustjóri fylgist með þessu og tilkynni Búnaðarfélagi Íslands, ef hann telur hættu á uppblæstri. Er síðan gert ráð fyrir, að Búnaðarfélag Íslands láti framkvæma ítölu í landið, þannig að ákveðið sé, hvað mörgu fé megi beita á landið og því skipt milli þeirra aðila, sem hlut eiga að máli. Þetta ákvæði er nýtt í frv. og er áreiðanlega til mikilla bóta. Í sambandi við þetta atriði er eina brtt. n. Það lítur svo út, sem það hafi ekki verið athugað, þegar frv. var samið, að þessi ítala geti þurft að fara fram í lönd, sem fleiri hreppar eiga saman, eins og sum afréttarlönd. Brtt. n. er gerð til þess að kveða skýrt á um það, hvernig skuli að farið, þegar svo stendur á.

Ég skal ekki hafa, þessi orð fleiri. Ég lít sjálfur svo á, að þetta mál sé sjálfsagt og eigi að ná. fram að ganga. Vænti ég þess, að hv. d. líti sömu augum á það.