17.06.1941
Neðri deild: 82. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1302 í B-deild Alþingistíðinda. (125)
Starfslok deilda
Atvmrh. (Ólafur Thors) :
Ég vil leyfa mér í nafni þingdeildarmanna að þakka hæstv. forseta fyrir hans röggsamlegu fundarstjórn. Það er rétt, að þetta hans virðulega hlutverk hefur stundum verið erfiðleikum bundið.
Ég óska honum góðrar heimferðar og heimkomu og vil láta í ljós þá ósk mína, að við megum allir hittast hér heilir á næsta þingi, og þá mun hann áreiðanlega taka aftur við sínu virðulega embætti, með samþykki allra þingdeildarmanna.