16.04.1941
Efri deild: 36. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (1272)
102. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Magnús Jónsson) :
Af því að það er orðið framorðið, skal ég leitast við að stytta mál mitt, eftir því sem unnt er, þótt vitanlega hafi margt komið fram, sem ástæða væri til að gera að umtalsefni. Ég býst þó við, að ég geti naumast komizt hjá að fara nokkrum orðum um sum atriðin f. h. n. Vil ég þá, byrja á því að geta þess, að slæðzt hefur prentvilla inn í frv. Þar stendur, að af 20 þús. kr. eigi að greiða 4040 kr., en á að vera 4030 kr. Ég hef þegar bent skrifstofunni á þetta og vona, að hæstv. forseti athugi þetta einnig og leiðrétti.
Nú hafa þrír hæstv. ráðh. talað um málið frá sjónarmiði sinna flokka. Hæstv. viðskmrh. byrjaði á að gera grein fyrir afstöðu Framsfl., og mér skildist á hv. síðasta ræðumanni, að mín ræða hefði átt að skýra málið frá sjónarmiði Sjálfstfl., en það er alls ekki. Ég skýrði málið frá sjónarmiði n. í heild, en aðeins á 2–3 stöðum vék ég að minni persónulegu skoðun.
Hæstv. viðskmrh. minntist á skattaívilnunina, sem önnur félög en útgerðarfélög hefðu um varasjóðsfrádrátt, og þar yrði að mismuna þeim allmikið. Ég get vel viðurkennt þetta, en mér þykir heldur mikið sagt hjá honum, þegar hann talar um, að þessi fyrirtæki séu áhættulaus. Ég held, að áhættulaus fyrirtæki séu ákaflega fá til. Ég skal taka sem dæmi fyrirtæki, sem ákaflega fáir hér virðast hafa samúð með, verzlunarfyrirtæki, heildsölufirma. Þetta er talsvert mikið áhættufyrirtæki, enda hafa þau mörg orðið gjaldþrota. Þau eiga það t. d. á hættu að tapa útistandandi skuldum. Iðnrekstur er talsvert áhættumikill, t. d. vegna samkeppni, erlendrar og innlendrar. Hins vegar skal ég játa, að munur er nokkuð mikill á þessu, sérstaklega munar miklu á nýbyggingarþörf fyrirtækja, og það, að ég hef á móti því að fara niður fyrir 40 með þann skattfrjálsa hluta varasjóðstillags er aðallega af því, að mér þykir það vera að seilast óþarflega langt aftur fyrir sig.
Mér þótti gott að heyra það, sem hæstv. viðskmrh. sagði, að hann taldi nauðsynlegt að jafna töp milli ára. Ég er alveg sammála þessum tapsfrádrætti, sem innleiddur var með skattaívilnunarl. frá 1938 og endurnýjaður í frv., ekki í 10 ár, heldur einhver svo og svo margra ára heimild til að jafna töpin og skattfrelsi á því, sem fer til að jafna þessi töp, og ég hygg, að óhætt sé að segja, að í mþn. sé till. um, að töpin skuli þannig jöfnuð milli nokkurra ára.
Ég álit, að þetta ætti að vera geymt, en ekki gleymt, þegar tekin verða til endurskoðunar skattal. til frambúðar.
Hv. næstsíðasti ræðumaður minntist á, að stríðsgróðinn hefði fallið útgerðarfélögunum í skaut, án þess að þau hefðu nokkuð gert til þess. Ég álít þetta mjög ómaklega sagt. Það er auðvitað rétt, að útgerðarfélögin hafa ekki komið stríðinu af stað, en þau hafa sannarlega til þess unnið að fá stríðsgróðann. Þau hafa þraukað með þessi dýru atvinnufyrirtæki í 9–10 ár, ýmist með lítinn eða engan ágóða eða þá stórtöp, þannig að auðug félög, sem áttu mjög gilda sjóði 1930, stóðu þannig, að það opinbera var farið að tala um, hvort ekki ætti að gera þessi félög upp. Þeir, sem þannig hafa þraukað með þessi atvinnufyrirtæki, þegar menn vildu ekki ráðast í að kaupa slík tæki, þó að þeim væri boðið fé að gjöf úr ríkissjóði til þess, þeir hafa talsvert gert til þess að fá að njóta þess veltiárs, sem síðasta ár hefur verið. Ég vil ekki mæla þá undan stríðsgróðaskatti, en ég vil ekki, að þessum eiturdropa sé blandað í þennan bikar, því að þeir eiga það ekki skilið. Ég býst við, að það geti, orðið áhöld um töp þrengingaáranna og gróðann nú, og þegar farið verður að gera upp töpin, þá komi í ljós, að stríðsgróðinn verði ekki mikið fram yfir þann mun, sem þeir hafa orðið að bera á tapsárunum.
Þá vil ég minnast með örfáum orðum á það, sem hæstv. ráðh. ræddi ýtarlega, sem sé þá skoðun Framsfl., sem kom fram í mþn. og viðtölum, sem fóru fram til undirbúnings þessu máli, að hætta að draga frá tekjuskatt og aukaútsvar og reikna skattstigann um með það fyrir augum, og getur það þá um leið verið svar til hv. l. þm. N.-M., sem kom inn á þetta atriði líka. Ég hef ekki talað við neinn, sem hefur ekki séð, að þetta hefur marga kosti. Ég fyrir mitt leyti tel hiklaust, að þetta hafi ýmsa kosti, en í mínum augum hafa ókostirnir verið meiri, og nokkuð er það, að þegar tekju- og eignarskattsl. voru sett fyrst hér á Íslandi árið 1921, þá var því hagað þannig, en var síðan breytt. Það er þess vegna ómögulegt að segja eins og hv. 1. þm. N.-M., að það sé tvímælalaust, hvort réttara er. Skal ég ekki fara langt út í það. En það eru sum stór atriði á móti því. Fyrst er það, að við höfðum í mþn. skrá, sem er mjög eftirtektarverð, sem sýnir, hve mikið greiðist af tekjuskattinum og útsvörum rétt fyrir áramótin. Það er svo gífurlegt, að það er næstum ómögulegt annað en að láta undan fyrir þeim rökum einum saman. Menn streitast við að greiða þetta fyrir áramótin til þess að fá það reiknað til frádráttar. Og t. d. skattstjóri hefur talið ógerning að afnema þetta. Þó að hann setti í staðinn háa dráttarvexti, þá kæmi það ekki að sama gagni. Það er betra að gefa góðum viðskiptamanni afslátt heldur en að refsa þeim vonda viðskiptamanni, — það verkar miklu sterkar.
En í mínum augum er önnur ástæða fyrir þessu enn meiri. Hæstv. viðskmrh. talaði um það með réttu, að hátekjuskatturinn beinlínis staðnæmdist við það, að hann væri farinn að reka sig upp undir, við það, að hann væri kominn í það að taka allar tekjurnar. En með því að lækka skattstigann, þá er stiginn framlengdur um helming. Og með reynslu undanfarinna ára fyrir augum vil ég ekki gera það að framlengja hann um helming. Og þegar hátekjuskatturinn var settur hér á í árslok 1935, þá er ég ekki viss um, hvort mönnum hefði þótt álitlegt, ef hann hefði verið helmingi hærri, en hálfur ófarinn.
Ég hef þess vegna verið á móti því að hringla með þetta. Það minnir á það, þegar verið var að hringla með hæstv. Alþ. milli árstíða. Það var stundum haft á sumrin og stundum á veturna. Hvor tveggja þingsetutíminn hafði nokkuð til síns ágætis, en aftur ýmsa ókosti. Við játum líka, að það eru nokkrir kostir við þessa aðferð, en það eru bara ókostirnir, sem okkur þykir vega meira.
Kem ég svo að hæstv. félmrh.
Það var einn aðalörðugleikinn á að koma á þessu samkomulagi, hve Alþfl. var ófús á að vilja viðurkenna réttmæti tapsfrádráttarins alveg frá 1931, og voru ýmsar till., sem þeir voru þar með, eins og t. d. sú, sem hann lýsti, um það að taka við þann frádrátt tillit til þess, að ævinlega ætti að hvíla á félaginu ákveðinn þungi skulda, svo eða svo mikill á hvern togara og svo og svo mikill á öðrum eignum félagsins eftir fasteignamati. En höfuðgallinn á þessu var sá, að samfara þessu hlaut að verða ógurlega mikið umstang. Og ég spyr bara að því: Hvaða samkomulag ætli mundi verða um slíkt mat? Og hvaða deilur gætu út af því risið og hve mikil sundrung, þegar fara ætti að meta, hve miklar skuldir ættu að hvíla á hverju félagi eða skipi? Annars vil ég benda á, að það er langt frá því, að félögin fái þessa peninga svo að segja gefins upp í hendur eða aðrir eigendur skipanna, sem koma í tapsfrádrátt. Þarf í því sambandi ekki annað en minna á e-lið 64. gr., sem talar um, hvernig á að verja þessu fé, sem verður skattfrjálst þannig. Það á að fara í ekki aðeins varasjóð, heldur sérstaka tegund varasjóðs, sem ekki má nota fyrr en á eftir öðrum varasjóði, sem ekki má nota nema til þess að mæta rekstrarhalla. Að vísu er gert ráð fyrir því, að ef þessu fé er varið til annars en þess, sem tekið er fram í þessum e-lið, 1. mgr., þá skuli greiða tekjuskatt af 60% þeirrar fjárhæðar, er þannig er varið úr sjóðnum, jafnháan þeim skatti, sem hefði orðið að greiða af fénu, þegar það var lagt fyrir, ef það hefði þá verið skattskylt. Ef stríðsgróðaskatturinn verður samþ. á Alþ. fyrir árið 1940, á af hverjum eyri af þessum 60% að greiða 75% í þann skatt. Þetta eru ákaflega hörð kjör, en hreint ekki óeðlileg. Þessi ráðstöfun, að veita þetta sérstaka skattfrelsi fyrir þessa upphæð, er ekki fyrir eigendur framleiðslutækjanna, heldur fyrirtækin sjálf, til þess að þessi varasjóður standi undir fjárhag fyrirtækjanna með því að tryggja þeim meira lánstraust. En svo endanlega, þegar slík félög væru gerð upp á sínum tíma, þá má ekki verja þessum varasjóði, sem myndaður er af þessu skattfrjálsa fé, til annars en þess að greiða þær áföllnu skuldir, sem eru á félaginu, og þar með náttúrlega hlutafé félagsins, sem er ekkert annað en skuldir félagsins til þeirra einstöku manna, sem lagt hafa fram fé í fyrirtækið. En það, sem þar er fram yfir, fellur undir þennan refsiskatt, þ. e. sem á að greiða af 60% þess fjár og tekið er fram í e-lið 64. gr. Það er því svo langt frá því, að þessi félög, sem hafa fengið þennan tapsfrádrátt, en ekki þurfa að nota hann allan til skuldagreiðslu, séu gerð jafnrétthá eins og hin, sem hafa tapað og þurfa svo að verja öllum þessum aukavarasjóði upp í áfallnar skuldir.
Ég skal svo lítið minnast meira á þetta, sem hæstv. félmrh. sagði, en vil aðeins út af því áhugamáli hans og Alþfl. að fá lækkaðan skattstigann segja, að það er mjög einkennilegt, að einn af fulltrúum þess fl. í mþn. (og við þessar umr.), eins og sést á áliti mþn., hefur unnið að því að hækka skattstigann frá 1935, svo að sá kærleikur hæstv. ráðh. og hans fl. að lækka skattstigann kemur mér ákaflega einkennilega fyrir sjónir. Við hinir nm. vildum hafa skattstigann óbreyttan. En fulltrúi Alþfl. í n. vildi hækka skattstigann strax, þegar tekjurnar væru komnar í 8 þús. kr. og þar yfir. — En skattstiginn er lækkaður dálítið af tekjum frá 8 þús.. og upp í 12 þús. kr. En hann er hvergi hækkaður. Hins vegar hefur hvergi komið fram frá Alþfl. till. um lækkun skattstigans, heldur aðeins til hækkunar hans.
Hvað snertir 12% viðaukann, er það að segja, að það hefur aldrei verið við þessa meðferð skattamálanna á hann minnzt. Ég sé ekki, að í þessu frv. standi nokkuð um að afnema 12% ákvæðið. En þau 12% renna, að því er ég best veit, til bæjarsjóða og sveitarsjóða. Þessi 12% má því láta út úr reikningnum, því að þau koma til góða þeim sömu gjaldendum, þegar farið er að jafna útsvörum niður á þá. Ég held, að ég sleppi svo öðrum atriðum í ræðu hæstv. félmrh., sem ég skrifaði upp eftir honum, sérstaklega af því að hann er ekki viðstaddur.
Kem ég þá að hv. 1. þm. N.-M. Hann undraðist dálítið yfir þessu merkilega frv., að samkomulag væri um það, en þó væru menn að boða brtt. Það stendur nú í grg. frv., að það sé borið fram af fulltrúum fl., en í grg. er einnig tekið fram, að þm. séu óbundnir um að bera fram brtt. og um að samþ. þær brtt., sem fram kunna að koma. Þessi sami hv. þm. beindi svo til n. nokkrum atriðum til athugunar. Því miður veit ég ekki, hve mikið starfshlé verður fyrir n. til að taka þetta til athugunar milli umr. En sumar þessar aths. voru um almennar breyt. á skattal. En hér er alls ekki farið fram á algerða endurskoðun á skattal., t. d. um það, hvernig skuli meta búfé til eignar. Það er sjálfsagt að minnast á þetta í n. En ég hygg, að n. taki þetta varla til að gera till, um það nú. Það væri eðlilegt í sambandi við útsvarslöggjöf að taka þetta til athugunar.
Þá minntist þessi hv. þm. á borgun til skattan. fyrir störf þeirra. Það er ekki ætlazt til þess, að skattan. starfi á öðrum tíma en þær hafa hingað til gert, nema í þetta eina skipti vegna þess dráttar, sem orðið hefur á þessari löggjöf. En það má vera, að setja megi bráðabirgðaákvæði í þessi l., þar sem stj. sé heimilað að greiða skattan. í þetta skipti eitthvað hærri borgun. Mér finnst í alla staði eðlilegt, að skattanm. þyrftu að fá meiri borgun, ef þeir vinna að þessu um hábjargræðistímann.
Sömuleiðis talaði hv. þm. um það, hvenær skattskrá væri lögð fram, en ákvæði um það heyra til almennrar endurskoðunar 1., ef breyta ætti því. En ég skal minnast á það í n.
Þá beindi sami hv. þm. því til n., hvort ætli að afnema skattfrelsi iðnfyrirtækja. Iðnfyrirtæki geta nú notið skattfríðinda í 5 fyrstu árin, er þau eru rekin. En svo þegar þessi 5 ár eru liðin, leggur fyrirtækið sjálft sig bara niður, og svo er af sömu aðilum stofnað iðnfyrirtæki í annari grein, sem nýtur þar skattfrelsis í 5 ár, o. s. frv.
Það var talað um það í mþn., hvort ekki ætti að veita þeim iðnfyrirtækjum fríðindi með skattívilnunum, sem t. d. þurfa að koma sér upp húsum. En þess konar ákvæði heyra undir almenna löggjöf, en ekki þetta mál, sem hér er um að ræða.
Þá sagði hv. 1. þm. N.-M., að sér fyndist ekki sanngjarnt, að menn ættu að fá skattfrádrátt fyrir það að fara á bíó og reykja sígarettur. En þessi mismunandi persónufrádráttur er bara miðaður við það, að það er dýrara að lifa í kaupstöðum heldur en í sveitum, þótt aðeins séu nauðsynjar keyptar, dýrast í stærstu kaupstöðunum, næstdýrast í þeim minni, en ódýrast í sveitunum. En hér er ekki verið neitt að reyna að mismuna mönnum með þessum mismunandi persónufrádrætti.
Ég er sammála því, sem hv. 1. þm. N.-M. sagði um skylduómagana, að það er sanngirnismál, sem hann þar hélt fram. En það er bara ákaflega erfitt að komast kringum þetta og breyta þannig til eins og hann vill, það verður erfitt að setja þar ákvæði um. Mér virðist eðlilegt, að menn ættu að fá frádrátt frá skattskyldum tekjum fyrir það að framfæra náin skyldmenni, eins og hv. þm. tók dæmi um, og einnig vegna barna, sem komin eru yfir það aldurstakmark, sem l. tiltaka um frádráttinn, þegar þau ganga í skóla og fara fyrst að verða verulega dýr. En þetta er bara skoðað þannig (t. d. viðvíkjandi því dæmi, sem hv. þm. nefndi), að maðurinn sé ekki skyldugur til að gera þetta, að skulum við segja framfæra farlama föðursystur o. s. frv., alveg eins og það er ekki skattfrjálst, þó að menn gefi svo eða svo mikið til guðsþakka eða gefi fátækum. Það eru góðverk, sem menn eru frá lagasjónarmiði ekki skyldugir til að framkvæma. Þess vegna er þetta hugsunarrétt eins og það er í 1. Ef maður kostar barn sitt á skóla, má segja, að það sé lúxus í vissu falli. Ég er þess vegna, af greindum ástæðum, ekki sammála hv. 1. þm. N.-M. um þetta.
Þá skaut hv. þm. fram aths. um umreikninginn. Ég tel till. hv. þm. um það mjög athyglisverða, og ef þetta, sem hann leggur til, er framkvæmanlegt, þá sýnist mér . það miklu einfaldara. Ég vil spyrja hagfræðinga um það, hvort þetta sé hægt, og ef það er hægt, er sjálfsagt að breyta þessu. En ég vil ekki breyt. í þessu, nema hún jafni þetta á fullkominn hátt. (PZ: Það liggur fyrir till. um form fyrir þessu hjá skattstjóra).
Þá sagði hv. 1. þm. N.-M., að honum þætti alveg nóg að binda 30% af skattskyldum tekjum útgerðarfyrirtækja 1940, sem lagðar eru í varasjóð þeirra. En að hafa þetta 40% er algerlega bundið í því samkomulagi, sem hefur orðið um málið milli fl. eftir langvarandi umr. og mikið reiptog, og býst ég við, að það hljóti þess vegna að verða gildandi.
Ég verð að játa, að ég skildi ekki alveg, hvað hv. 1. þm. N.-M. átti við, þegar hann var að tala um þessar 150 þús. kr., sem má eftir frv. vera lægsta verð, sem togarar eru metnir til í sambandi við tapsfrádráttinn. Ég hef skilið þetta þannig, að félag, sem aldrei hefur tapað og hefur fært fyrningar á skipum sínum, komi alls ekki til með að geta haft neinn tapsfrádrátt. Það er sama með það félag, hvað lágt skip þess standa í bókfærðu verði, og þetta 150 þús. kr. ákvæði kemur því ekkert við, hvað þau skip eru bókfærð. Það getur verið t. d., að eitthvert skip sé bókfært í núlli, og félagið heldur áfram að bókfæra það í núlli. Það er hægt vegna þessa ákvæðis. En það má ekki fara lengra niður reikningslega með skipið en í 150 þús., til þess að eigandi þess, félag eða einstaklingur, geti fengið tapsfrádrátt. Þetta ákvæði er sett inn í 1. aðeins til þess að draga úr tapsfrádrættinum. Ég hef samþ. þetta til samkomulags, þó að ég álíti ekki neina sanngirni mæla með því að hafa þetta svona.
Ég þarf svo sem ekkert að segja um ræðu hv. þm. Vestm., því að ég er honum í raun og veru alveg sammála um það, sem hann var að segja í sinni ræðu. Ég er fús til að taka það til athugunar, hvort hægt er að koma nýbyggingarsjóðnum þannig fyrir, að hann gæti orðið fyrirtækjunum til framdráttar, en ekki sem mylnusteinn um háls. En ég gef honum ákaflega litla von um það, að ákvæðum frv. verði breytt, því að þessi ákvæði um nýbyggingarsjóðinn eru ákveðin eftir mjög miklar umr., og sem því er, eins og maður þekkir í slíkum efnum, hlutur, sem ekki þýðir að reyna að hrófla við. En hins vegar vil ég segja það, að ég álít ekki, að hægt sé að segja, að þessi nýbyggingarsjóður verði fyrirtækjunum mylnusteinn um háls. Það geta að vísu verið erfiðleikar á að leggja þetta fé fram. En nýbyggingarsjóður er náttúrlega varasjóður gagnvart skuldheimtumönnum og aflar útgerðarfyrirtækinu sterkara lánstrausts heldur en ef það hefði hann ekki. Og eru þess vegna miklar líkur til þess, að banki lánaði það fé, sem félag þyrfti að festa í nýbyggingarsjóði, vegna þess að þótt ekki megi veðsetja það, þá er það eign, sem kemur til skuldagreiðslu, þegar annað þrýtur. Hins vegar getur sumum kannske þótt það kjánaleg hugsun, að félag geti átt kannske milljón kr. í nýbyggingarsjóði, en verða að starfa með talsvert dýru lánsfé. En þetta er kredda, sem komizt hefur inn í þetta mál, og kredda, sem hefur nokkuð til síns máls. Með því að binda féð þannig er því komið úr umferð til þess að skapa ekki verðþenslu, sem yrði útgerðarfélögum sem öðrum til mestu bölvunar.
Ég er sammála hv. þm. Vestm. um það, að það dugar enginn nýbyggingarsjóður eða aðrir sjóðir til þess að kaupa ný skip, ef atvinnufyrirtækin bera sig ekki. En einn stór liður í því, að þau geti borið sig, er, að verðlag allt, kaupgreiðsla o. þ. 1. þenjist ekki upp úr öllu valdi. Og það er skylda þjóðfélagsins, eftir því sem hægt er, að koma í veg fyrir verðþenslu. Þetta ákvæði er ein tilraun í þá átt, þó hún sé að vísu ekki stór. Annars er annað frv. fyrir þessari hv. d., sem gæti orðið til þess, að menn gætu lagt nokkurt fé í nýbyggingarsjóði, þ. e. heimildin til að taka 10 millj. kr. innanríkislán. Væri ekki óeðlilegt að koma fyrir fé nýbyggingarsjóða í þessum bréfum. Ég álít, að í nýbyggingarsjóðum væru gild bréf, sem lánuð væru gegn handveði í ríkisskuldabréfum, — t. d. væri ríkisstofnun svo sem háskólinn, sem á mikið af bréfum, sem gæti fengið hentugt lán með tryggingu í slíkum bréfum. Það er alveg hiklaust hægt að slá því föstu, að slík bréf hljóta að vera gjaldgeng, þar sem þau eru tryggð með handveði í ríkistryggðum bréfum. En það hefur verið mikið um það talað, að það mætti ávaxta fé nýbyggingarsjóða á annan hátt en þann, t. d. í öruggri fasteign eða öðru slíku, sem ekki væri háð verðfalli peninganna, en það hefur ekki verið við það komandi.
Ég þori ekki að segja um það, hvernig bréf nýbyggingarsjóða yrðu metin til skatts eða hvernig á að meta hlutabréf félaganna út frá því, hve mikið er af bréfum í nýbyggingarsjóðum. En ég sé ekki, að vaxtalaus bréf sé hægt að meta í fullu verði.
Hin ströngu ákvæði 2. gr. um varasjóði eru svo víðtæk og almenn, að ég tel stórum varhugavert, t. d. í c-lið, þar sem fyrirtæki er bannað að viðlögðum refsiskatti að verja fé til nokkurs, sem talizt geti rekstrinum óviðkomandi eða ónauðsynlegt. Það getur vel verið, að maður vildi bjarga fé úr áhættusömum atvinnuvegi eins og útgerð, en hið opinbera telji tjón að því, að það sé gert, og hindri það því með slíkum ákvæðum. En ef verzlunarfyrirtæki t. d. vildi aftur á móti leggja fé í útgerð, hvaða ástæða er til að torvelda það? Hvers vegna má ekki málningarverksmiðja t. d. leggja í skósvertugerð? Hvaða ástæða er yfirleitt til að leggja hömlur á þess konar þróun iðnfyrirtækja í landinu? Ákvæði í 2. gr. um slíka meðferð varasjóða eru eingöngu miðuð við útgerðina, og þá er það rangt að láta þau ná til hvaða atvinnurekstrar sem er. Þessu þyrfti að breyta.
Einni spurningu vildi ég að lokum beina til hæstv. fjmrh. Það gæti leikið vafi á, hvað átt er við með skattskyldum tekjum í 64. gr. (j-lið). Er þar ekki átt við hið sama og hingað til, þegar um skattskyldar tekjur hefur verið rætt? Ég teldi æskilegt að fá yfirlýsingu hæstv. ráðh. um, að svo sé, og tel þá ekki þurfa brtt. til að segja það skýrar í l. En í 2. gr. frv., sem er brtt. við 6. málsgr. 8. gr. l., er sagt, að sé nokkuð af ársarði umræddra félaga lagt í varasjóð, þá skuli helmingur þeirrar upphæðar undanþeginn tekjuskatti, „og skal hann koma til frádráttar við ákvörðun skattskyldra tekna“. Mér skilst það væri hugsanlegt, ef ekki er sleginn varnagli við, að láta „skattskyldar tekjur“ þýða nettó-tekjurnar að ½ varasjóðstillagsins frádregnum. Þótt ég teldi slíka skýringu mjög hæpna, skaðar ekki, að hinn rétti skilningur liggi fyrir skýrt og öruggt.