18.04.1941
Efri deild: 38. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 625 í B-deild Alþingistíðinda. (1286)

102. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Herra forseti! Ég hafði ekki ætlað mér að taka verulegan þátt í þessum umr. umfram það, sem ég gerði við 1. umr.

En bæði var það, að mér var tjáð, að hv. þm. Vestm. hafi beinlínis beint til mín ýmsum atriðum, og eins hitt, að ég var þess var, að hann ræddi málið nokkuð með sérstökum hætti við 1. umr. og í nokkuð öðrum tón en búast hefði mátt við, þar sem yfirlýst var, að samkomulag hefði náðst um málið milli stjórnarflokkanna.

Hv. þm. mun hafa sagt, að skattamálastefna undanfarinna ára hafi verið þjóðhættuleg, og því beri brýna nauðsyn til gerbreytinga.

Ég hef ekki haft aðstöðu til að fylgjast svo vel með umr. í þessari hv. d., að ég viti, hvort þessi hv. þm. er með frv. eða móti. En þetta er samkomulagsfrv., og því hygg ég, að hann sé því fylgjandi. Þess vegna finnst mér, að hin digurbarkalegu ummæli hans séu bæði óviðkunnanleg og ástæðulaus, þar sem skattstigi þessa frv. er talsvert hærri en í l. frá 1935, sem mikið var deilt um á sínum tíma. Í þessu frv. er gert ráð fyrir allt að 75% skatti á hæstu tekjur, en áður var þetta hámark aðeins 49%. Að vísu eru nú sérstakar ástæður fyrir hendi, þar sem er hinn óvenjulegi stríðsgróði.

Ég verð því að segja, að ég kann illa stóryrðum þm. um þetta atriði, því að skattstiginn er almennt hærri í þessu frv. en meðan hátekjuskatturinn og 12% viðaukinn voru í gildi. En af þeim hátekjuskatti rann helmingurinn til bæjar- og sveitarfélaga. (MJ: Það varð nú víst lítið úr því!). Ég veit ekki betur en það hafi verið framkvæmt. (MJ: Hann var allur tekinn í annað). Það mun vera rétt, að skatturinn rann í sérstaka sjóði, en það kom í sama stað niður.

Því verður ekki neitað, að í þessu frv. er gengið miklu lengra en gert var í l. frá 1935. Ég ætla ekki að fara hér út í nein brigzlyrði, þótt ég telji þessi ummæli hv. þm. (JJós) vera óréttmætar árásir á samstarfsflokkana. Ég viðurkenndi það, að sum útgerðarfélög hefðu ekki getað reist sig við samkvæmt þágildandi skattal. En þetta var ekkert sérstakt. Þannig var það, er og verður um sum þeirra, ef tapsfrádrátturinn væri ekki leyfður. Hann höfum við alltaf viljað leyfa vegna hins áhættusama rekstrar þessara fyrirtækja.

Framsfl. hefur lagt til, að farin yrði ný leið til að koma í veg fyrir, að tekjuskattskalinn þurfi að ganga eins hátt og verið hefur og gert er í þessu frv., en það strandaði á hinum flokkunum. Þeir vildu ekki fylgja þessari sjálfsögðu umbót.

Ég ætla svo ekki að blanda mér frekar í þessar umr. eða fara að gera frekari samanburð umfram það, sem ég drap á í frumræðu minni um málið og var algerlega hlutlaust.