29.04.1941
Neðri deild: 47. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 650 í B-deild Alþingistíðinda. (1318)

102. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Pétur Ottesen:

Ég sé mig tilknúðan að bera fram skrifl. brtt. við brtt. á þskj. 291,2.d.1, um að meginmál till. orðist svo: Af fé nýbyggingarsjóðs má ekki meira en 3/5 hlutar vera innstæða á biðreikningi o. s. frv.

Brtt. þessi frá fjhn. á þskj. 291 á við 58 gr. l., og með henni rýmkar n. um heimild frv. til þess, að nokkur hluti nýbyggingarsjóðs megi vera innstæða á biðreikningum. Frv. ákveður þann hluta 1/3, en fjhn. leggur til að hækka hann upp í 3/5 hjá öðrum fyrirtækjum en þeim, sem njóta tapsfrádráttar. Rýmkun n. er til bóta. En mér virðist ekki rétt að gera þannig upp á milli þessara fyrir tækja. Ég get ekki séð, að nein sanngirni sé í því, að þeim útgerðarfélögum, sem hafa varið svo og svo miklum hluta af gróða sinum til að greiða skuldir, sem á félögunum hvíla frá taprekstrarárunum, sé. gert erfiðara fyrir í þessu efni en öðrum félögum.

Hjá þeim félögum, sem verst voru stödd fjárhagslega áður en þetta gróðatímabil hófst, hefur mikið af gróðanum farið til að greiða þessar gömlu skuldir. Það hefur ekki einasta þýðingu fyrir eigendur þessara útgerðarfélaga, að hér hefur orðið rétting á, heldur hefur það vitanlega mikla þjóðhagslega þýðingu. Það mælir því öll sanngirni með því, að þessi félög fái jafnan rétt og öðrum er ætlaður til þess að nota innistæðu á biðreikningi í nýbyggingarsjóðinn.

Hin skrifl. brtt. mín fellur alveg inn í meginmál till., og það þarf heldur ekki að breyta tölulið 2 næst á eftir, — hann getur staðizt fyrir þessu. Ég hef tekið þann kost að bera brtt. fram skriflega, af því að umr. á að ljúka í nótt og því ekki tími til að prenta hana.

Hv. þm. Seyðf. gerði að umræðuefni brtt. á þskj. 294 frá hv. þm. A.-Húnv. (JPálm) og hv. 3. landsk. (StSt) og leit svo á, að hún væri óþörf. Ég skaut því fram, að það skipti máli, hvort átt væri m. a. við síldar- og beinamjölsverksmiðjur, sem þannig eru reknar, að þær eru að vísu hlutafélagseign, en hafa að höfuðmarkmiði að vinna úr því hráefni, sem til fellur á staðnum, lifrarbræðslu og beinamjölsvinnslu, til hagsbóta fyrir innleggjendurna á staðnum, útgerðarmenn og sjómenn, sem taka hlut sinn í afla (hlutaskipti). Þannig er því háttað t. d. með verksmiðjuna á Akranesi. Gjaldið, sem tekið er fyrir vinnsluna, er miðað við að standa undir rekstri og stofnkostnaði verksmiðjunnar. Nú finnst mér eðlilegt að líta svo á, að slík fyrirtæki hljóti að heyra undir hin umræddu lagaákvæði. Ég tel sjálfsagt að samþ. þessa viðbótartill. þeirra tvímenninganna.