06.03.1941
Sameinað þing: 3. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í B-deild Alþingistíðinda. (141)

1. mál, fjárlög

Fjmrh. (Jakob Möller) :

Ræður hv. þm., sem til máls hafa tekið, hafa í rauninni ekki verið þannig, að ég þurfi miklu að svara í sambandi við það mál, sem hér liggur fyrir, fjárlagafrv. Yfirleitt hafa hv. þm. stillt orðum sínum mjög í hóf, nema ef segja mætti „að undanteknum amtmanninum“, hv. 4. þm. Reykv. Hans ræðu get ég alveg leitt hjá mér vegna þess, að ræður þeirra þm., hans og þeirra, sem honum fylgja, eru yfirleitt ekki hátíðlega teknar, hvorki hér á Alþingi né af þjóðinni, að ég hygg. Aðrir ræðumenn töluðu ekki þannig, að ég eigi neitt sérstaklega sökótt við þá.

Í sambandi við ræðu hv. þm. Seyðf. datt mér í hug þessi vísa eftir Tómas Guðmundsson:

Hárin mér á höfði rísa,

er hugsa ég um kærleik þinn.

Þetta er annars ágæt vísa,

einkum seinni parturinn.

Að vísu var það fyrri parturinn af ræðu hv. þm. Seyðf., sem mér féll vel í geð, þar sem hann las upp úr ræðu minni við þetta sama tækifæri, fjárlagaræðunni frá síðasta þingi. En að það hafi verið af kærleik til mín eða minna flokksmanna, að hann las upp þann ræðupartinn, gæti ég efazt um, sérstaklega af því, að hann las ekki ræðuna eins og ég mundi hafa gert. Hv. þm. mun hafa valið þennan ræðupart með tilliti til þess, sem hann þurfti að halda fram. Hann lét sem sig undraði mjög, að í frv. því, sem hér liggur fyrir, skyldi ekki vera gerð tilraun til þess að framfylgja stefnuskrá Sjálfstfl. um það að spara sem mest rekstrarútgjöld ríkissjóðs. Ef hv. þm. hefði lesið áfram í þessari ræðu minni, þá hefði hann ekki þurft að lýsa þessari undrun sinni svo mjög, vegna þess að ég sagði, án þess að slá nokkru föstu um það, hversu réttlát gagnrýni Sjálfstfl. hefði verið á stjórnarháttu undanfarinna ára, að ég teldi ekki, að til þess gæti komið, að þeirri stefnuskrá yrði framfylgt að svo stöddu. Ef slíkri breyt. ætti að vera hægt að koma fram, þá þyrfti að endurskoða löggjöfina að mjög miklu leyti, og yfirleitt allt stjórnarkerfið, og það eru ekki miklar líkur til þess, að hægt væri að ná samkomulagi um þær breyt. Ég segi heldur ekkert um það, að tiltækilegt væri að koma slíkum breyt. í framkvæmd eins og nú er komið, og ég get bætt því við, að það má vel vera, þó að gagnrýni Sjálfstfl. væri réttlát á sínum tíma, að ekki gæti talizt rétt, eins og nú er, að breyta um þá löggjöf, sem sett hefur verið á síðari árum. Ég skal taka til dæmis tryggingalöggjöfina, en gegn henni var á sínum tíma nokkur andstaða innan Sjálfstfl. Ég vil þó ekki segja, að Sjálfstfl. vildi afnema þá löggjöf nú. Ef nú á að fara að gera þá kröfu til Sjálfstfl., að hann framkvæmi sína stefnuskrá, þá verður að veita. honum þá aðstöðu, sem hann þarf til þess að hafa meiri hluta á Alþingi. Með þessari viðbót frá mér held ég, að vísan verði annar s betri en ágæt, sem. hún var þó, einkum seinni partur inn, eins og ég sagði.

Hæstv. viðskmrh. talaði hér fyrst, en á engan hátt þannig, að ég þurfi við hann að deila. Hann var að vísu að inna að því, að til athugunar þyrfti að koma að endurskoða skattalöggjöfina, vegna þess að tollar væru orðnir óhæfilega háir og ættu sinn þátt í vaxandi dýrtíð.

Hann talaði sérstaklega í þessu sambandi um tolla af innflutningsvöru, verðtoll og innflutningsgjöld, og að hin mikla hækkun á verðtollinum ætti rót sína að rekja til þess, að tollar væru einnig teknir af flutningsgjöldum. Þetta er náttúrlega mjög orðum aukið, því að höfuðhækkunin er aukning verðtollstekna og sjálf verðhækkun varanna. Þó að farmgjöld séu að vísu há og hafi hækkað vegna ófriðarins, þá er sú viðbót við verð varanna engan veginn svo mikil, að það hafi verulega þýðingu fyrir tollana, samanborið við verðið, sem á vörunum er, að viðbættu flutningsgjaldi. Þó að verðtollur af flutningsgjöldum væri felldur niður, þá mundi almenningur verða sáralítið var við þann létti, sem af því yrði. Hins vegar safnast, þegar saman kemur, og ríkissjóð getur munað nokkuð um þann toll, þótt almenningur verði hans lítið var. Og þess er að gæta, að í sjálfu sér er þetta lítill skattur á stríðstekjur og stríðsgróða, svo mjög sem nú er talað um skatt af stríðstekjum. Ég hef álitið rétt að nota heimild til þess að fella niður toll af flutningskostnaði, og gerði ég grein fyrir því óbeinlínis í sambandi við það, er ég upplýsti, hvernig afkoma ríkissjóðs var framan af árinu, einnig í sambandi við erfiðleika á innflutningi varanna til landsins. Nú eftir að séð er, hvaða tekjur ríkissjóður hefur fengið á þessu ári, þrátt fyrir horfurnar framan af árinu, þá verður að taka það til athugunar, að það er engin vissa fyrir því, að áframhald verði á þessum mikla gróða ríkissjóðs. Ég lít að þessu leyti öðrum augum á tollana en hv. þm. Seyðf. og sennilega hæstv. viðskmrh. Ég tek fremur til greina, að verðtollurinn, þar sem hann er hæstur, er að svo miklu leyti óhófsskattur, sem kallað er, þar sem eru vörur, sem almenningur gæti við sig sparað. En telji þingið það fært, þá getur það náttúrlega gert ráðstafanir til þess, að breytt verði framkvæmdum í þessu efni.

Hv. þm., sérstaklega hv. þm. Seyðf. og hæstv. viðskmrh., gerðu einnig að umtalsefni, hvað úr mundi verða um skattamálin, og töluðu um væntanlega miklar tekjur af tekjuskattinum, sérstaklega hv. m. Seyðf. Mér skildist hann telja óþarflega lágt áætlað um tekjuskattinn (3 millj. kr.). Ég gerði einnig grein fyrir því í minni frumræðu, að ég hefði ekki að svo stöddu talið ástæðu til þess að áætla hann hærri. Ég get bætt því við, að það er alveg óráðið, hvernig skattalöggjöfin verður að því er tekur til þeirra tekna, sem þá koma til skatts. Hitt er augljóst, ef framkvæmd verður á því, sem báðir þessir þm., hv. þm. Seyðf. og hæstv. viðskmrh., virtust . ganga út frá, að útgerðinni yrði gefið tækifæri til þess að komast á réttan kjöl og stofna sæmilega varasjóði til þess að hafa upp á að hlaupa, þá er fyrst það að athuga, að tekjur þær, sem nú falla til, mundu skerðast nokkuð, en hins vegar veit enginn, hver endirinn á þessu verður. Þó að vel léti nú í ræðum þessara hv. þm. um það að standa við þessi gefnu loforð, kveður dálítið við annan tón í blöðum þeirra og sumra flokksbræðra þeirra um þessi mál. Ég veit ekki til, að um neinn ágreining sé að ræða innan Sjálfstfl. í þessum efnum, en hitt er annað mál, hvort samkomulag getur orðið um það í framkvæmd. Af þessum ástæðum er ekki auðvelt að segja um það, hvað t. d. mikill tekjufrádráttur kemur frá skattskyldum tekjum á næsta ári. Það fer eftir því, hvernig framkvæmdin verður meðal annars í þessu efni. Annars er þetta mál varla komið á það stig, að ég telji tímabært að leiða það inn í umr. hér.

Hv. þm. Seyðf. var að upplýsa, að það hefðu komið fram till. frá a. m. k. tveimur flokkum, Framsfl. og Alþfl. Það mun að vísu rétt, að einhverjar till. hafi komið fram í þessum málum, en engar till. hafa enn til mín komið. Annars geri ég ráð fyrir því, að ýtt verði á eftir því úr þessu, að reynt verði að komast að einhverri niðurstöðu í þessum efnum.

Hv. þm. Seyðf. virtist kvarta yfir því, að í fjárlfrv. væri minna ætlað til verklegra framkvæmda en æskilegt væri á næstu árum, og hugsaði sér, að það mundi ef til vill vera af því, að ég gerði ráð fyrir því, að Alþ. vildi sjálft ráðstafa þeim umframtekjum, sem verja ætti til aukinna verklegra framkvæmda. Þetta er ekki alls kostar rétt. Eins og ég lýsti í frumræðu minni, þá tel ég í rauninni ekki fullkomlega forsvaranlegt að áætla tekjur ríkissjóðs neitt verulega hærri en gert er í frv. Þess vegna er ekki um neinar öruggar umframtekjur að ræða. En að sjálfsögðu getur hv. fjvn. breytt þessari áætlun og hækkað hana til stórra muna. Ég geri ráð fyrir, að slíkt mætti rökstyðja allvel með því, að vera sem bjartsýnastur á framtíðina, en það verður einnig að gera ráð fyrir því, að brugðið geti til beggja vona í þessum efnum.

Hv. þm. Seyðf. var að tala um það, að það væri leitt til þess að vita, þegar mögru kýrnar ætu þær feitu, en verst væri þó, þegar feitu kýrnar ætu sjálfar sig.

Mér finnst þetta góður texti fyrir þennan hv. þm. og hans flokk að leggja út af, því að mér finnst enginn flokkur líklegri til þess að geta orðið það á, að einmitt feitu kýrnar ætu sjálfar sig.