05.05.1941
Neðri deild: 51. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 689 í B-deild Alþingistíðinda. (1453)

92. mál, sveitarstjórnarlög

Frsm. (Skúli Guðmundsson) :

Þetta frv. er komið aftur frá hv. Ed., sem gerði á því lítils háttar breyt., nefnilega þá, að oddviti skuli auk launa sinna hafa minnst tvo af hundraði af innheimtum útsvörum. Ég tel, að þetta hafi svo lítið að segja, að ekki sé ástæða til að gera aths. við það, en það hefur komið í ljós, að flm. frv. hefur láðst að taka fram, frá hvaða tíma ætti að reikna laun oddvita eftir þessum nýju 1. Þess vegna hef ég borið fram brtt. á þskj. 343 um, að aftan við 2. gr. frv. bætist: og taka hreppsnefndaroddvitar laun samkv. þeim frá 1. jan. 1941. — Þessi brtt. er fram borin til að taka af allan vafa um það, að laun oddvita fyrir yfirstandandi ár skuli greiða eftir þessum nýju lögum.