28.04.1941
Sameinað þing: 9. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í B-deild Alþingistíðinda. (146)

1. mál, fjárlög

Forseti (HG):

Eins og hv. þm. er .kunnugt, hefur það verið venja, að við frh. 1. umr. fjárl. færu fram almennar umr. og þeim útvarpað. Nú hef ég að þessu sinni tilmæli frá þingfl. um það, að ekki yrðu útvarpsumr. viðhafðar við þessa umr. fjárl. Þar með er ekki sagt, að þetta sé brot á þingsköpum, því að þau mæla svo fyrir, að ekki sé skylt að hafa útvarpsumr. nema ósk um það komi frá þingfl. Það verða því ekki að þessu sinni viðhafðar útvarpsumr.