30.04.1941
Neðri deild: 48. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 692 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)

99. mál, sjómannalög

Skúli Guðmundason:

Frv. þetta er borið fram af sjútvn. og inniheldur þá breyt. á sjómannal., að loftskeytamenn verði eftirleiðis taldir með yfirmönnum skipa, og sömu ákvæði gildi um þá sem stýrimenn og vélstjóra.

Í 32. gr. l. nr. 41 frá 1930 segir svo : „Sé skipverji eigi vinnufær um lengri tíma vegna veikinda eða slysa, eða sé hann haldinn sjúkdómi, er hætta stafar af fyrir aðra menn á skipinu, þá getur skipstjóri vikið honum úr skiprúmi. Á skipverji þá rétt á fullu kaupi sínu þar til ráðningu er slitið, og auk þess í einn mánuð frá ráðningarslitum, sé hann stýrimaður eða vélstjóri, eða í 7 daga, sé hann í annarri stöðu á skipinu.

Sé skipverji sjálfur valdur að veikindunum eða slysinu, eða hafi hann leynt þeim, er hann réðst á skipið, á hann rétt á kaupi aðeins fyrir þann tíma, sem hann var vinnufær þeirra vegna, hvort sem honum er vikið úr skiprúmi eða eigi“.

Ég vil vekja athygli á, í sambandi við þetta, að á stærri fiskiskipum hafa stýrimenn og vélstjórar lágt fast kaup, en meiri hluti af launum þeirra er „premía“. Öðruvísi er háttað með loftskeytamenn, sem hafa aðeins sitt fasta kaup. Ég vil spyrja hv. n., hvort hún hafi talað um þetta við útgerðarmenn og hvort þeir muni vera breyt. samþykkir.

Svo er annað atriði. Ég hef veitt því athygli í fiskiþingtíðindum, að á síðasta fiskiþingi var samþykkt áskorun til Alþingis um að setja það ákvæði í sjómannal., að þeir, sem ráðast á skip, þurfi að hafa vottorð frá viðkomandi héraðslækni eða heilsuverndar stöð um, að þeir séu ekki haldnir neinum smitandi sjúkdómi. Mér finnst eðlilegt, að þetta verði gert. — Vil ég spyrja hv. n., hvort hún hafi tekið þetta til athugunar, og ef svo er ekki, hvort hún álíti þá ekki rétt að athuga það mál.