29.04.1941
Sameinað þing: 10. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (151)

1. mál, fjárlög

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti! Það hafði ekki verið ætlun mín að tala hér við þessa umr. En þar sem þetta nál. á þskj. 257 er tekið til umr. og rætt efni þess, þá þykir mér rétt að skýra frá því með örfáum orðum, á hverju sá fyrirvari er byggður, sem ég hef gert við þetta nál.

Yfirleitt get ég sagt það, að það var ekki mikill ágreiningur í fjvn., enda þótt við þrír nefndarmenn skrifuðum undir nál. með fyrirvara. Sérstaklega var fyrirvar í minn um það, hvernig varið skyldi því fé, sem rætt er um í nál. af þessa árs tekjum. Og ágreiningurinn var um það, hvort heimilt skyldi vera að greiða út féð nú, þann hluta af því, sem kynni að verða fram yfir tekjur á þessu ári, eða það skyldi geymast til seinni tíma. Við vitum ekki í raun og veru, hvað það er, sem kemur hér til úthlutunar, því að nú er lítið liðið af árinu, og um tekjur er ákaflega vafasamt. Við vitum ekkert um það, hverjar tolltekjurnar verða, og sennilega verða þær heldur minni heldur en síðastl. ár. En aftur á móti horfir þannig við, að tekjuskattur verður hærri, ef gott árferði verður, en vafi er á því, að hann borgist allur inn til ríkissjóðs, ef ástand stórversnar. Enda þótt tekjur verði miklu hærri en áætlað var, verða gjöldin langt fram yfir áætlun, og umframgreiðslurnar verða án efa geysilegar. Og einmitt til verklegra framkvæmda verður að greiða eftir áætlun fjvn., nái hún fram að ganga, þegar í vor, en þá er allt í óvissu um tekjur ársins í ár, svo það er nokkuð fljótt að borga út tekjuafganginn áður en nokkur veit, hver hann er ef hann þá verður nokkur.

En þó að þetta yrði allt til staðar og ég játi og geti undirstrikað, að þörf sé fyrir verklegar framkvæmdir fyrir landið, svo sem samgöngubætur yfirleitt, hafnargerðir o. fl., þá er það og hefur verið mín skoðun, að ríkið ætti, þegar nóg er um atvinnu hjá einstökum atvinnuveitendum, að draga að sér höndina á þeim árum, en búa sig undir það, þegar atvinnuskilyrði verða lakari, að hafa efni á að geta þá aukið mjög vinnu og hlaupið þannig undir bagga, þegar atvinnuleysi er í landinu. Ég get tekið það fram, að ég býst við, að á einstaka stöðum verði hægt að vinna fyrir það, sem ætlað hefur verið til verklegra framkvæmda, en á öðrum stöðum, í það minnsta hér nærlendis, verður ' ekki hægt að vinna, vegna mikillar eftirspurnar eftir vinnukrafti, fyrir þá fjárveitingu, sem ætluð er til verklegra framkvæmda. En því er svo varið um flesta, að þegar einn hefur ástæður til þess að nota sinn hlut af þessari veitingu til verklegra framkvæmda og notar hann, þá þykir öðrum hart að láta sinn hlut bíða. Og ég geri ráð fyrir, að ef ekki tækist að geyma þetta fé í sjóði, þá mundi erfitt seinna að láta fjárveitingu til verklegra framkvæmda, og gæti þessi fjárveiting nú orðið til þess, að meira væri unnið nú að verklegum framkvæmdum en góðu hófi gegndi.

Nú er, eins og allir vita, nauðsynlegt fyrir alþjóð manna, að sem mest sé unnið að framleiðslunni í landinu og að bændur geti unnið sem mest að heyvinnu og búframleiðslu til þess að þurfa ekki að fækka búpeningi þeirra. Þegar hafnbann er á landinu, ríður því ekki á öðru meira en að afurðirnar séu sem nægilegastar fyrir hendi í landinu fyrir fólkið til þess að lifa af, því að við vitum ekki, hvað við munum geta sótt mikið til annarra þjóða í þessum efnum.

Ég verð að segja það, að mér hefði verið það skapi næst, — og getur verið að það komi seinna fram —, að flutt verði frv. hér á þessu þingi um heimild fyrir ríkisstj. til þess að leggja fé til hliðar í sérstakan sjóð, sem notaður yrði síðar til þess að hlaupa undir bagga um verklegar framkvæmdir o. fl. En auðvitað nær þetta ekki lengra, ef það fer þannig á þessu ári, að tekjurnar verða ekki meiri en gjöldin. En ég álít, að það sé vert að athuga þetta. Við þurfum að tryggja okkur sem bezt fyrir hvers konar erfiðleikum, sem að okkur kunna að steðja af völdum ófriðarins.

Ég get tekið það fram, að skoðanamunur var yfirleitt ekki mikill hjá okkur í n., og ég bjóst því við, að takast mætti að brúa bilið á milli þeirra skoðana, sem komu fram hjá hv. þm., þó að það tækist að vísu ekki alveg í þetta skiptið.

En það var við þessa umr., sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, að fjvn. væri að vasast í hlutum, sem henni kæmu ekkert við, og sagði, að hún hefði verið svo djörf að bera fram frv., sem tiltæki fjárveitingu og fyrirmæli um óskyld efni. En ég mótmæli þessu alveg. Það frv., sem hv. þm. talaði um, höggormurinn, var borið fram af þrem þm. Ed., sem rétt höfðu til þess samkv. þingmannsrétti þeirra, og er ekki ástæða til þess að vera að sletta neinu í fjvn. út af því. Annars hefur fjvn. reynt, eins og á undanförnum þingum, að vinna að fjármálum landsins á þann farsælasta hátt, sem henni virðist. En einum þykir of langt gengið og öðrum of skammt um sama atriði.