02.05.1941
Neðri deild: 49. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (1514)

112. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip

Ísleifur Högnason:

Ég tek undir það með síðasta ræðumanni, að þetta mál fari til n. Það hefur farið fram hjá mér við fyrri umr. og nál. hefur ekki komið fram.

Samábyrgðin hefur nú starfað í 30 ár og ekki átt fyrir skuldum, eða sjaldnast. Ég get ekki sagt, hvernig á því stendur, en orsökin hlýtur að vera sú, að iðgjöld af vátryggingarupphæðum eru of lág. Mér virðist 50 þús. kr. muni hrökkva skammt til að jafna hallann á rekstrinum, einkum á þessum tímum, þegar öll fiskiskip eru tryggð í stofnuninni. Mér sýnist, að stofnunin eigi að bera sig uppi sjálf. Ég vil í því sambandi minna á bátaábyrgðarfél. Vestmannaeyja, sem er búið að starfa í 75 ár og á allmikinn varasjóð, einungis vegna þess, að iðgjöldin hafa verið það há og útgerðarmenn látnir greiða í sjóðinn.

Mér finnst verða að breyta starfsháttum stofnunarinnar, áður en ríkissjóður kastar í hana þessu fé, sem er hvort sem er ekki nægilegt.

Ég vil að lokum styðja þá ósk, að málið fái þinglega afgreiðslu og. fari til n.