08.05.1941
Efri deild: 55. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í B-deild Alþingistíðinda. (1526)

112. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip

Frsm. (Ingvar Pálmason) :

Þetta frv. fer fram á að veita Samábyrgð ísl. fiskiskipa nokkurt stofnfé. En eins og kunnugt er, hefur Samábyrgðin nú starfað um 30 ára skeið án þess að hafa nokkurt stofnfé, en aðeins orðið að styðjast við ríkisábyrgð á lánum vegna starfseminnar.

Með l. um vátryggingu vélbáta var Samábyrgðinni gert að skyldu að annast endurtryggingar fyrir öll félög, sem stofnuð yrðu samkvæmt þeim.

Þau atvik geta komið fyrir, að nauðsynlegt sé fyrir Samábyrgðina að hafa nokkurt handbært stofnfé. Reynslan hefur líka staðfest þetta. Það er torveldara að ná hagkvæmum endurtryggingum, ef það er vitað, að fyrirtæki, sem óskar endurtryggingar, er stofnfjárlaust eða jafnvel á ekki fyrir skuldum. Auk þess liggur á augum uppi, að þegar útgjöldin nema meiru .en árstekjunum, þá þarf að grípa til þess óyndisúrræðis að taka lán, sem leggur nýjar byrðar á félagið í vaxtagreiðslum. Af þessu leiðir svo hærri iðgjöld en vera þyrfti, ef fjárhagur Samábyrgðarinnar væri sæmilegur.

Ég hygg, að í ár sé sérstök ástæða til að sinna þessu, því að vitanlegt er, að mörg bátaábyrgðarfélög hafa komizt í þrot. En Samábyrgðin þarf þá enn að grípa til þess að taka lán, til þess að standa undir útgjöldum sinum og hlaupa undir. bagga með bátaábyrgðarfélögum þeim, sem komizt hafa í þröng.

Hér er farið fram á, að ríkissjóður leggi fram 500 þús. kr. stofnfé, sem greiðist á 10 árum. Þó ég telji persónulega, að þessi greiðslumáti sé of seinfær, þá játa ég það, að þetta er þó miklu betra en verið hefur. Þetta frv. gekk ágreiningslaust í gegnum Nd., og sjútvn. þessarar d. mælir með því, enda þótt hún hefði kosið, að starfsféð hefði verið greitt upp á skemmri tíma, og leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.