08.05.1941
Efri deild: 55. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (1528)

112. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip

Frsm. (Ingvar Pálmason) :

Það er ekki í mínum verkahring að afsaka það, þó viðkomandi ráðh. hafi ekki gert grein fyrir afstöðu sinni til þessa máls í þessari d. Ég er ekki heldur svo stöðugur gestur í Nd., að ég viti, hvernig umræður hafa fallið þar, en ég sá, að fjmrh. var a. m. k. viðstaddur eina umr. málsins þar.

Það var ekki heldur ástæða til, að n. færi að kynna sér afstöðu þeirra tveggja ráðh., sem Þetta mál heyrir sérstaklega undir, fjmrh. og atvmrh., því þeir eiga báðir sæti í hv. Nd.

Ég veit ekki, hvers vegna hv. 1. þm. Reykv. getur ekki skilið, að auðveldara sé að starfa með eigin rekstrarfé en lánsfé. Þetta ætti hver maður að skilja. Samábyrgðin hefur aldrei haft neitt starfsfé, en oft orðið að taka allstór lán til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar. Það hefur mikil áhrif á afkomu hvaða fyrirtækis sem er að þurfa árlega að greiða allstórar fúlgur í vexti. Ég skil ekki, að nokkrum, sem eitthvað þekkir til rekstrar, dyljist, hver munur er á að starfa með stofnfé, sem ekki þarf að greiða af vexti, eða dýru lánsfé.

Viðvíkjandi því, að þetta frv. beri vott um of mikla bjartsýni í fjármálum, skal ég svara því, að ég tel óhjákvæmilegt fyrir Samábyrgðina að hafa þetta starfsfé, og það jafnvel þótt ríkissjóður þyrfti að taka lán í þessu skyni. Hygg ég, að ekki gæti minni bjartsýni eða óvarfærni í þessu máli en ýmsum öðrum, sem fyrir þinginu liggja, og það jafnvel málum, sem hv. 1. þm. Reykv. stendur að.