29.04.1941
Sameinað þing: 10. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (156)

1. mál, fjárlög

Pétur Ottesen:

Ég þarf nú ekki jafnmiklu að svara hér eins og hin langa ræða hv. 1. þm. Reykv., þar sem hann hóf nokkrar ádeilur á fjvn., hefði gefið tilefni til, m. a. af því að mér virðist, að ræða mín í gær hafi eytt þeim misskilningi, sem ádeilur hans á n. voru að langmestu leyti byggðar á. En áður en ég vík að ræðu þessa hv. þm., vil ég aðeins segja nokkur orð viðvíkjandi þeim ræðum, sem hafa verið haldnar af hv. 5. landsk. (ÞÞ) og hv. þm. Ak. (SEH). Eins og vænta mátti, kom það mjög skýrt fram hjá hv. 5. landsk. þm., að fyrirvari hans var ekki byggður á því, að hann væri á móti því, að lagt væri fé til hliðar til verklegra framkvæmda, heldur vildi hann hafa annað form á þessu heldur en það, sem meiri hl. n. vildi, sem sé að miða það við vissar og ákveðnar verklegar framkvæmdir. Það kom einmitt skýrt fram hjá hv. 5. landsk. þm., að hann var til með að ganga lengra en n. gerði till. um, þ. e. a. s., að meira fé væri lagt til hliðar í þessu skyni heldur en n. gerði till. um. Till. n. er um 1600000 kr., en hann var til með að verja í þessu skyni allt að 2 millj. kr.

Ég skal svo í sambandi við svar mitt til hv. 1. þm. Reykv. koma nokkuð inn á það atriði, hvers vegna meiri hl. n. valdi frekar þessa leið, að miða þetta við einstakar framkvæmdir, heldur en að gera till. um að leggja féð í sjóð, sem svo yrði varið ótiltekið og óábent af n. til einhverra slíkra hluta.

Hv. 1. þm. Reykv. viðurkenndi nú, að í raun og veru féllu saman skoðanir hans og n., þær, sem ég túlkaði hér með minni ræðu í gær, og að það væri varfærnisstefna og sama stefna, sem hann vildi fylgja í málinu yfirleitt. Og þar sem hann gerði þetta, virðist mér niður fallin ádeila hv. þm. á n. fyrir till. hennar, bæði viðvíkjandi auknum fjárframlögum til verklegra framkvæmda á þessu ári og svo till. n., sem ganga í þá átt að auka nokkuð verklegar framkvæmdir á fjárl. fyrir árið 1942. Það, sem þá er eftir af þessu að gera upp við hv. 1. þm. Reykv., eftir að hann hefur gefið hér þessa yfirlýsingu, er það, að ræða mín hefði ekki verið í samræmi við það, sem í nál. stendur. Og til þess nú að fá einhvern grundvöll undir þessa viðurkenningu, þá varð hv. þm. að byggja þetta á því, að annað fælist í nál. heldur en það, sem fram kom hér í mínum orðum. Ég ætla að taka það hér fram, að menn almennt — að undanteknum hv. 1. þm. Reykv. einum — hafa lesið þetta nál. og lagt í það þann skilning, að álit manna hafi á því fallið alveg á sömu lund eins og sú túlkun á því fól í sér, sem fram kom hér í minni ræðu. Þess vegna er þetta álit hv. 1. þm. Reykv. á nál. alveg sérstætt, og því varð mér á að miða við fyrirbrigði, sem við höfum heyrt hér getið um og lifað hefur í munnmælum gegnum aldirnar, og hv. þm. hóf svo nokkra ádeilu á þeim grundvelli. Og svo að ég fari nokkuð út fyrir þingið að því er þetta atriði snertir, get ég vitnað til þess, að í blaðafrásögn um þetta atriði stóð í fyrirsögn fyrir grein um afgreiðslu fjvn. á fjárl., að með því ætti að leggja fé til hliðar í þessu augnamiði, og markar það vitanlega alveg réttan skilning á nál., sem stendur þar fyrir flestra manna sjónum, að ég ætla, skýrum stöfum. Því að eins og ég tók fram í gær, er það vitanlega alveg ómögulegt að gera hvort tveggja, að verja þessu fé öllu til verklegra framkvæmda á þessu ári og leggja féð til hliðar til þess að vinna fyrir það þau sömu verk, þegar kringumstæðurnar eru orðnar breyttar, þannig að meiri þörf sé fyrir að láta vinna fyrir féð.

Mér þykir svo ekki ástæða til að fara frekar út í þetta atriði út af fyrir sig. En hitt get ég vel skilið, að það er ekki nema mannlegt, þó að hv. 1. þm. Reykv. færi nú að nýju yfir nál. og reyndi enn af nýju með miklum heilabrotum og áreynslu síns styrka heila að finna út úr nál. með sínu mikla ímyndunarafli eitthvað til þess að undirbyggja skoðanir sínar, samtímis því, sem hann viðurkennir réttmæti þess, sem í nál. felst, og lýsir yfir, að það falli saman við sínar skoðanir.

Þessi hv. þm. komst einhvern veginn þannig að orði, að hann vildi lesa það út úr þessu tilvitnaða dæmi, sem ég minntist á, að ég gæti kannske líkt nál. við þá heilögu bók biblíuna. En þetta datt mér ekki í hug að gera. En hitt þætti mér ekki óeðlilegt, að líkja nál. við bókina Pál postula, sem próf. hv. 1. þm. Reykv. skrifaði á sínum tíma, því að það er sameiginlegt um nál. og þá bók, að hvort tveggja er það mannaverk. Og þegar hv. 1. þm. er að tala um, hvað ætti að þýða að skrifa sumt, sem í nál. stendur, þá get ég eins sagt: Til hvers var prófessorinn að skrifa Pál postula? Heimildirnar um Pál postula eru í biblíunni, og þangað geta menn sótt heimildir um þennan merkilega trúboða fornaldarinnar. Ég skýt þessu fram af því að hv. 1. þm. Reykv. fór að brjóta upp á þessum samanburði.

Þá kem ég að því, sem þessi hv. þm. var að deila á og sagði, að væri ástæðulaust, að vera að gera slíkar ráðstafanir um fjárl. í ár sem í till. n. er vikið að, því að ef afgangur yrði þar til ráðstöfunar, þá skyldi leggja hann í einn sjóð, án þess að tiltaka neitt um það, hvernig honum skyldi varið. Ég skal með fáeinum orðum gera grein fyrir því, hver rök liggja fyrir því að velja þessa leið.

Fjvn. fannst ekki óeðlilegt, með því breytta viðhorfi, sem nú er, að slík hækkun yrði gerð á fjárveitingum til verklegra framkvæmda í ár, að með þeim verklegu framkvæmdum fengjust álíka afköst og fengizt hefðu fyrir það fé, sem var ákveðið í fjárl. síðast, á þeim tíma, sem það var ákveðið.

Hv. 1. þm. Reykv. taldi eðlilegt, eins og fram kom hjá hv. 5. landsk., að leggja þetta í sjóð, og yrði ekkert ákveðið um notkun hans að svo stöddu. Nefndinni fannst ekki óeðlilegt, að með því breytta viðhorfi, sem er, væri eindregið gert ráð fyrir að beina til verklegra framkvæmda eigi minna fé en telja má, að þurfi til þess, að jafn árangur náist nú og náðst hefur með fjárveitingum til þeirra hluta á undanförnum árum. Féð, sem um ræðir, mundi ekki nema rétt hrökkva til þess, ef það væri notað nú að fullu, en sú notkun þess væri að líkindum miður skynsamleg, og því er lagt til að geyma í sjóði. —Við vitum, að vegamál landsins og brúargerðir eru felld í fast kerfi og sömuleiðis hafnargerðir og allar helztu verklegar framkvæmdir: Því áleit n. rétt, að jafnframt því, sem ákveðnar verða viðbótarframkvæmdir á þessum sviðum, sé ákveðið, að þær falli inn í kerfið. — Ég hygg, að tillögur n. um þetta hvort tveggja séu á rökum reistar. Það má segja, að slíkt megi alltaf ákveða síðar, þegar til úthlutunar komi á fénu. En það er rétt, sem rétt er, .og fé, sem Alþingi vill, að renni til verklegra framkvæmda, á það að taka ákvörðun um vífilengjulaust.

Hv. 1. þm. Reykv. hefur gert árangurslausar tilraunir til að finna aðra niðurstöðu í nál. fjvn. en í orðum mínum hér, og get ég ekki elt ólar við fálm hans né eytt tíma frá umr. um skattalög o. fl. brýn mál, sem bíða hér á dagskrá Nd. næst á eftir, til að svara hverju smáatriði í hans löngu ræðu.

Í byrjun þessa fundar fór ég til hæstv. fjmrh. og spurði hann, hvort hann vildi ekki taka til máls um stefnu stjórnarinnar, sem um leið er stefna fjvn. í þessu máli, þar sem ádeila væri hafin á þá stefnu. En ráðh. áleit, að umr. um þetta ættu ekki við að sinni, við frh. 1. umr. fjárl., og því mundi hann ekki segja sitt álit fyrr en málið kemur til 2. umr. — Þess er þá að bíða.