03.05.1941
Neðri deild: 50. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)

106. mál, iðnlánasjóður

Frsm. (Emil Jónason):

Við 2. umr. um frv. til l. um iðnlánasjóðsgjald var nokkuð farið út í það af hv. þm. V.-Húnv., að hann óskaði eftir því, að þetta mál allt væri athugað betur, og taldi, að það þyrfti að gera nokkrar breyt. á þessum frumv. Og höfum við nokkrir úr iðnn., sem saman náðum, — hv. þm. Mýr. var veikur og hv. 6. þm. Reykv. náðist ekki til —, hv. 1. þm. Skagf., hv. 8. landsk. og ég, borið fram brtt. á þskj. 308, sem fer fram á það, að iðnlánasjóði sé veitt heimild til að gefa út handhafavaxtabréf, og megi hann jafnan hafa í umferð bréf, sem nema að nafnverði allt að tvöföldum þeim höfuðstól, sem hann hefur á hverjum tíma. Þetta álitum við, að ætti að vera til bóta, þannig að það yrði til þess, að meira fé væri í umferð en ella. Hitt atriðið, hvort ætti að gera upp á milli þeirra iðnfyrirtækja, sem unnu úr íslenzku hráefni eingöngu, og annarra iðnfyrirtækja um að þau sleppi við þetta gjald frá framleiðendunum, þá fannst okkur, að það skipti svo litlu máli, þar sem iðnlánasjóðsgjaldið af öllu landinu mundi nema um 25 þús. kr., og því kom okkur saman um að halda okkur við frv. að öðru leyti en því, sem brtt. okkar á þskj. 308 segir til um.