03.05.1941
Neðri deild: 50. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (1566)

106. mál, iðnlánasjóður

Skúli Guðmundsson:

Ég sé, að hv. þm. A.-Sk. er ekki staddur hér í hv. d., — en ég gerði ráð fyrir, að hann gerði grein fyrir brtt., sem við flytjum við frv. um iðnlánasjóð á þskj. 328.

Eins og ég hef sagt áður, tel ég ákaflega hæpið, að það svari kostnaði að leggja sérstakt gjald á fullunnar innfluttar iðnaðarvörur, þar sem það nemur ekki nema 25 þús. kr. Við leggjum því til, að ríkissjóðsgjaldið verði hækkað um 25 þús. kr., eða úr 40 þús. kr. í 65 þús. kr. á ári. En iðnlánasjóðsgjald samkvæmt sérstökum l. verði ekki tekið, þ. e. að það verði fellt niður, sem er b-liður úr 1. gr .

Nú er nýbúið að setja tollskrána, þar sem sett eru saman í eina heild öll aðflutningsgjöld, og mundi það valda aukinni fyrirhöfn við alla innheimtu, ef farið er að bæta ofan á mörgum vörutegundum og sérstöku gjaldi. Við flm. teljum ekki borga sig eða rétt, nema brýna nauðsyn beri til, að leggja svo mikla vinnu í þetta fyrir svo litla upphæð, heldur væri betra að hækka ríkissjóðsframlagið sem því nemur. Með brtt. okkar mundi falla niður iðnlánasjóðsgjaldið frá iðju- og iðnfyrirtækjunum til iðnlánasjóðs, sem er ætlazt til, að verði 1/4% af greiddum vinnulaunum. Við teljum sérstaklega óeðlilegt að leggja slíkt gjald á þau fyrirtæki, sem vinna úr innlendu efni, en mörg þeirra hafa ekki notið lána úr iðnlánasjóði og ekki líkur til, að svo verði fyrst um sinn, þar sem gert er ráð fyrir að veita lán aðallega til smærri iðnfyrirtækja.