03.05.1941
Neðri deild: 50. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (1567)
106. mál, iðnlánasjóður
Frsm. (Emil Jónsson) :
Ég álít, að það sé aðalatriðið, að sjóðurinn fái þetta fé, en ekki, hvort hann fær það á þennan hátt eða hinn. Og mætti út frá því sjónarmiði segja, að það mætti nokkuð einu gilda, hvort brtt. hv. þm. V.-Húnv. og hv. þm. A.-Sk. eða frv. yrði samþ. í núverandi mynd. Fjárhagslega fyrir sjóðinn skiptir það engu máli, hvort brtt. verður samþ. eða frv. eins og það er. Ég teldi þó rétt, að samþ. yrði frv. eins og það er, því ég vildi ekki, að þetta hefði í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð og honum yrði ofþyngt með iðnlánasjóðsgjaldinu, m. a. vegna þess, að ef harðnaði í ári, yrði þetta skert, en sjóðurinn ekki þess megnugur að verða af því 1/4% gjaldi, sem honum ber að taka nú.
Ég býst ekki við, að þörf sé að vera að bera kvíðboga fyrir innheimtunni á þessu gjaldi. Ég hef talað við hæstv. fjmrh., og hann taldi, að þessi innheimtuaðferð fyrir iðnlánasjóð hefði ekki mikil óþægindi í för með sér.
Hvað því viðvíkur að fella niður algerlega það gjald, sem iðnfyrirtækin greiða af frjálsum vilja, þá álít ég, að þar sé verið að slá á útrétta hönd þeirra. hetta ¼% gjald af greiddum vinnulaunum er kannske ekki ákaflega mikilvægt atriði fyrir iðnlánasjóðinn. En er rétt að slá á þessa útréttu hönd framleiðenda vegna þess, að einstakir þeirra hafa ekki fengið lán úr iðnlánasjóði? Mér finnst þetta of þröngt sjónarmið. En aðalatriðið er, að sjóðurinn fái þetta fé til umráða til þess að geta styrkt þau félög, sem þurfa mikið á lánum að halda. Hvernig sem fer um brtt. þeirra hv. þm. V.-Húnv. og hv. þm. A.-Sk., sem ég er á móti að verði samþ., þá vænti ég fastlega, að ákvæði frv. um að gefa út handhafavaxtabréf verði samþ., því ég hygg, að enginn ágreiningur sé um það.