29.04.1941
Sameinað þing: 10. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (157)

1. mál, fjárlög

Gísli Guðmundsson:

Úr því að þessar umr. hafa orðið nú þegar um álit hv. fjvn., vildi ég drepa á tvö atriði, sem eiga heima í sambandi við þær. Einstakar till. n. ræði ég auðvitað ekki við þessa umr.

Fyrst er það atriði í sambandi við till. meiri hl. fjvn. um að ákveða að verja umframtekjum ársins 1941 til verklegra framkvæmda. N. hefur ritað fjmrh. um málið, en býst ekki við að geta lagt fram endanlegar till., fyrr en milli 2. og 3. umr. fjárl. Ég tel það eiginlega óhjákvæmilegt, að þessar till. liggi fyrir við 2. umr. fjárl., því að þær verður að ræða í sambandi við brtt. við frv. til fjárl. fyrir 1942. Ég hygg, að margt mæli með þeirri leið, sem n. hefur valið, þótt orkað geti tvímælis um einstakar tillögur. Ég skýt því til fjvn., að hún reyni að sjá til þess, að till. geti legið fyrir Alþingi við 2. umr. Yfirleitt er það ákaflega óheppilegt, að mikið af brtt. komi ekki fram fyrr en við síðustu umr.

Í sambandi við fjárlfrv. fyrir 1942 vildi ég aftur drepa á það, að mér finnst það geti verið ákaflega athugaverð stefna, bæði í frv., eins og það er frá hendi ráðh., og í till. fjvn., að lækka framlög til verklegra framkvæmda, svo sem gert er. Krónutalan lækkar að vísu ekki og hækkar sums staðar, en það;eru verðminni krónur en voru og því minni framlög. Nær allar upphæðir til annarra hluta eru líka hækkaðar samkv. gildisbreytingu peninganna. Þetta hefur ekki aðeins þau áhrif, að minna verði framkvæmt fyrir framlögin 1942 en undanfarin ár, heldur er hætt við, að þegar allt færist í .venjulegt horf og barningurinn byrjar á ný fyrir fjmrh. að hafa fé til nauðsynlegra útgjalda, verði þungur róðurinn að fá að nýju aukin framlögin til verklegu framkvæmdanna, ef þau hafa verið látin lækka svo mjög móts við önnur gjöld, meðan fjárhagur er rúmur. En vera má, að nefndin eigi í fórum sínum einhverjar tillögur, þar sem girt sé fyrir þá galla, sem mér virðast vera á ráði hennar.