05.03.1941
Neðri deild: 12. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 719 í B-deild Alþingistíðinda. (1602)
40. mál, hafnargerð á Skagaströnd
Flm. (Jón Pálmason) :
L. um hafnargerð á Skagaströnd eru bráðum orðin 12 ára. Þegar þau voru sett, voru ákveðin þau fjárframlög, sem nægileg töldust til að ljúka verkinu. Síðan hafa orðið breyt. á gildi peninga og verðlagi, og hefur verkið eigi komizt svo langt áleiðis sem til var ætlazt, enda gengið frekar treglega að fá hið nauðsynlega fé til framkvæmdanna. Í þessu frv. er því farið fram á það að hækka bæði heimildina til fjárveitinga af hálfu ríkisins og ábyrgðarheimildina. Ég skal ekki. fara mörgum orðum um málið, meðan ekki eru gefin sérstök tilefni til, en vonast til, að n. taki nauðsyn þess til íhugunar.
Ég legg til, að málinu verði, að lokinni umr., vísað til 2. umr. og sjútvn.