29.04.1941
Neðri deild: 47. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)

60. mál, hafnargerð á Akranesi

Frsm. (Jón Ívarsson) :

Eins og nál. á þskj. 264 ber með sér, leggur n. til, að frv. þetta verði samþ. með þeirri breyt., að í staðinn fyrir 750 þús. kr. ábyrgðarheimild komi 720 þús. Er þetta í sjálfu sér leiðrétting á frv. Eins og hafnarl. fyrir Akranes eru nú, er svo fyrir mælt, að ríkið skuli leggja fram 2/5 kostnaðar, allt að 480 þús. kr., og þar að auki er stj. heimilað í sömu 1. að ábyrgjast allt að 500 þús. kr. Í hafnarl., sem gilda yfirleitt, leggur ríkissjóður til kostnaðar og ábyrgist gjarnan 3/5. N. sá ekki ástæðu til að hafa Akranes að þessu leyti öðruvísi en aðra þá staði, sem hafa slík hafnarl., og í samræmi við það er ábyrgðin sett 720 þús. á móti framlagi ríkissjóðs, sem er 480 þús. Ábyrgðin er þar með sett 3/5 af kostnaði, en framlagið eins og það stendur í 1. óbreytt.

Í sjálfu sér er ekkert fleira fram að taka þessu viðkomandi. Þetta frv. miðar að því að færa ábyrgðarheimild ríkissjóðs til samræmis við það, sem gildir í l. um hafnargerðir annars staðar á landinu við kauptún, og mælir n. því með, að það verði samþ.