10.05.1941
Efri deild: 57. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

60. mál, hafnargerð á Akranesi

Frsm. (Ingvar Pálmason) :

Um þetta mál gildir nákvæmlega það sama og um frv. um hafnargerð á Skagaströnd, sem var hér áðan til umr. Það liggja sömu ástæður fyrir þeirri breyt., sem í þessu frv. felst, um breyt. á l. um hafnargerð á Akranesi. En ég vil aðeins geta þess, að í hv. Nd. var gerð lítils háttar breyt. á frv., þannig lagað, að tölur þær, sem í frv. standa, eru færðar til samræmis við þau hlutföll, sem hafa gilt í 1. um hafnargerðir, og er það sjálfsagður hlutur. Enda var enginn ágreiningur um það í n. að gera þessa leiðréttingu, að láta sömu hlutföllin haldast um framlag ríkissjóðs og hafnarsjóðs Akraness.

Sjútvn. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.