30.04.1941
Neðri deild: 48. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (1684)

108. mál, bæjarstjórn á Akranesi

Pétur Ottesen:

Ég ætla ekki að hefja neinar umræður um þetta mál, enda er þess ekki þörf, heldur aðeins þakka hv. n. fyrir afgreiðslu á málinu og þær breyt., sem hún hefur gert á frv. Óska ég svo, að það geti gengið áleiðis.