06.05.1941
Neðri deild: 52. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í B-deild Alþingistíðinda. (1702)
83. mál, landskiptalög
Eiríkur Einarsson:
Ég geri ráð fyrir, að frv. Þetta horfi til endurbóta á löggjöf þeirri, sem nú gildir um landskipti, enda hefur ýmsu verið áfátt í þeim efnum og vakið deilur um framkvæmd þeirra l.
Tilefni þess, að ég vildi segja hér fáein orð, var eitt ákvæði í brtt. n., það er brtt. 377. Mér finnst, fljótt á litið, að sú brtt. geti tæplega horft til bóta í þessu máli. Þá skoðun byggi ég á orðalagi brtt., sem er á þá leið, að ef einum eða fleiri aðilum, sem koma við ákveðin landskipti, þyki áður lögfest skipti vera óhagkvæm, þá skuli matsmenn taka kröfu hans eða þeirra til breyt. til greina, en því aðeins megi matsmenn taka þá kröfu til greina, að breyt. á landskiptunum megi bæta úr, öðrum aðilum að skaðlausu. Þetta virðist mér mótsagnakennt, og ég hygg, að þetta geti orðið að deiluefni. Ég sé ekki betur en að hér sé verið að stofna til deiluefnis, því að þyki einum aðilanum skiptin óhagkvæm, sem fyrir eru lögfest, vill hann aðeins breytingar sér til hagsbóta, og um leið mundu skiptin koma í bága við hagsmuni hins aðilans. Ég á torvelt með að hugsa mér þau landskipti, sem séu til bóta fyrir báða aðila.
Ég vildi benda á þetta hér, og eins og lagafrv. þetta er að öðru leyti orð í tíma töluð og til mikils gagns, mundi þetta ákvæði út af fyrir sig geta valdið miklum deilum. Aðili biður matsmenn um að framkvæma skiptin, en þeir mega ekki gera það, nema telja megi, að það sé hinum aðilanum að skaðlausu. Nú mundi í flestum tilfellum ekki vera talið skaðlaust að eigin mati, sem þeir teldu réttmæt skipti. Mætti því gjarnan útrýma þessu úr landskiptalögunum, þar sem um heitt málefni er að ræða, og þarf ekki mikið út af að bera til að deilur rísi milli aðila.