12.05.1941
Efri deild: 58. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (1737)
123. mál, læknisvitjanasjóður
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson) :
Hv. 1. þm. Reykv, beindi þeirri athugasemd til hv. d., hvort ekki væri varhugavert að stofna slíka sjóði sem þessa, sem svo á krepputímum yrðu lagðir til hliðar, eins og gert hefur verið að undanförnu, og ekki greitt fjárframlag ríkisins til þeirra. Við vitum það, að þess eru dæmi, að ýmis fjárframlög ríkissjóðs, sem bundin eru í l., hafa verið felld niður á örðugleikatímum. Ég skal ekkert um það segja, hvort þeir tímar eru nú í nánd, að til slíks þurfi að grípa á næstunni, eða hvort sjóður sem þessi, ef lögfestur verður, er einn af þeim, sem verður settur til hliðar. En ég man ekki, hvort nokkur sjóður er í 1., sem ríkissjóði ber að leggja til, sem uppfyllir þessi skilyrði, sem þessum sjóði er ætlað að inna af hendi. Hins vegar er það þá á valdi hvers þings á hverjum tíma, til hvaða sjóða skuli lagt fé. Og gæti ég þá vænzt þess, að sízt yrði gripið til þess að leggja til hliðar svona sjóði, sem ætlazt er til þess að greiði fyrir því að vernda mannslífin, með því að greiða fyrir að sækja lækni og lyf. Nú er það ekki meiri bjartsýni, sem felst í þessu frv. um stofnun þessa sjóðs, heldur en mörgu öðru, sem nú hefur verið gert á hæstv. Alþ. Mér virðist óþarfi að efast um getu ríkissjóðs til þess að styrkja þennan sjóð, eins og svo margt annað.
Þá var hv. 2. þm. N.-M. að beina því til n., hvort ekki vær í rétt að athuga það í sambandi við. 1. gr. frv., hvort ekki væri of lítið ætlað til hreppa, sem hefðu sérstöðu, að mér skildist þannig, að einn hreppur væri t. d. í námunda við fjölmennt kauptún, því að ekki er gert ráð fyrir að leggja þennan nefskatt nema á þá hreppa, sem eru utan þess kauptúns, sem læknirinn býr í. Ég skal játa, að við höfum talað um þetta í n., hvort nokkur hreppur mundi vera, sem svo væri ástatt um. (PZ: Í bæði Sauðanes- og Presthólahreppi situr læknir, og báðir hafa nú læknisvitjanastyrk). Það er sjálfsagt að athuga þetta. En ég hef lauslega athugað þetta við flm., hvort hér gæti orðið um árekstra að ræða á milli framlags þess, sem þessum hreppum er ætlað á fjárl., og þessa frv., og telja þeir, að það komi ekki til greina — og ekki mundi vera neitt læknishérað eða hreppur, sem ekki hækkaði í þessum styrk, ef læknisvitjanasjóðurinn yrði stofnaður.
Þá beindi hv. 2. þm. N.-M. fyrirspurn til mín viðvíkjandi framlaginu. Ég skil það svo, að ef ríkið leggur fram upphæð, er nemur 1 kr. á hvern mann í læknishéraði, sem til greina kemur, þá beri hreppum að leggja fram 50 aura á hvern mann, þ. e. 1/3 gjalds, á móti framlagi ríkissjóðs. Ég skal ekki binda þetta fastmælum, heldur leita mér frekari upplýsinga, hvaða skilning beri að leggja í orðalag, sem hér er um að ræða.
Þá drap hv. 1. þm. N.-M. á nokkuð svipað atriði og samþingismaður hans og vitnaði í svipað dæmi. Ég man ekki, hvort sama er um að ræða í hans kjördæmi og þeim læknishéruðum, sem til greina geta komið, Hróarstungulæknishéraði og Fljótsdalslæknishéraði. Og þá koma til greina aðeins tveir hreppar í þessum héruðum, sem njóta nú styrkja, það er einn hreppur í Hróarstungulæknishéraði, sem hefur fengið 300 kr. styrk, og Jökuldalshreppur með 200 kr. Nú er ekkert kauptún í báðum þessum læknishéruðum, sem læknir situr í, svo mér skilst, að allir hreppar héraðsins geti komið til greina að verða þátttakendur í myndun þessa sjóðs. Og það er augljóst mál, að þessi læknishéruð fá með því miklu hærri styrk heldur en gert er nú ráð fyrir í fjárl. Ég hef að vísu ekki tölur um mannfjölda í þessum læknishéruðum, en ég hygg, að þetta muni vera rétt. Það er yfirleitt svo, að í hverju læknishéraði er einn hreppur, sem allajafna nýtur slíks styrks, og stundum eru þeir tveir og þá undantekning, ef þeir eru þrír. Þetta er því ekki eins varhugavert eins og hv. 1. þm. N.-M. vildi vera láta, að það gæti rýrt hlut þeirra læknishéraða, sem hér kæmu til greina, heldur mundi það auka upphæðina, sem kemur til greina að nota í þessu augnamiði.
Hins vegar munum við í fjhn. athuga málið milli umr. í sambandi við það, sem bent hefur verið á.