16.05.1941
Neðri deild: 61. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)
25. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
Sigurður Kristjánsson:
Hv. Ed. hefur breytt þessu frv. þannig, að hún hefur fellt niður fyrstu till. þess. En hún var sú að fella niður 1. gr. l., sem er um, að ekki skuli heimilt að byggja síldarverksmiðjur hér á landi nema með leyfi ríkisstj. Þessa tillögu hafði Nd. samþykkt, og eftir því, sem mér er sagt, er óvíst, að meiri hl. Þm. í Ed. hafi verið móti henni, þótt svo vildi til, að hún félli þar við atkvgr. Annar fulltrúi Alþfl. var veikur, og fleiri þm. munu hafa verið fjarstaddir. Nál. þeirrar deildar ber ekki með sér, að þetta atriði hafi vakið miklar deilur eða það muni þurfa að verða til að hindra framgang málsins, þótt Nd. haldi nú fast við álit sitt og setji 1. gr. aftur inn í frv. Þess vegna hef ég borið fram brtt. í þá átt á þskj. 529 og vil vænta þess, að hv. þdm. verði sjálfum sér samkvæmir og samþ. hana. Ég vil lýsa yfir því, að verði það ekki gert, greiði ég atkv. móti frv.