16.05.1941
Neðri deild: 61. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)

25. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Sigurður Kristjánsson:

Mig undrar það mjög, að hv. þm. N.-Þ. skuli ekki heldur biðja hv. þd. að taka aftur það, sem hún er búin að samþ. Ég á ekki með að taka það aftur á eigin ábyrgð, sem d. hefur gert að samþykkt sinni. Það er blinda, sem gripið hefur hv. þm. N.-Þ. vegna hagsmuna kjördæmis hans, og þýðir ekki að deila við hann frekar. En ég bið ekki deildina um annað en hún haldi fast við yfirlýstan vilja sinn. Ég gæti eins og hv. þm. rifjað upp forsögu málsins. Í n. áskildum við hv. þm. Ísaf. (FJ) okkur rétt til þess báðir að bera fram brtt. við frv., og fylgi mitt við það var ætíð bundið þeirri von og skilyrði, að brtt. mín, sem Nd. samþ., næði fram að ganga, — áður hafði ég aðeins greitt því atkv. til 2. umr. Og ég hvorki vil né get tekið brtt. aftur f. h. deildarinnar.