05.05.1941
Sameinað þing: 12. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í B-deild Alþingistíðinda. (184)
1. mál, fjárlög
Frsm. (Bjarni Bjarnason) :
Ég mun leiða hjá mér að svara fyrirspurn um höfn við sunnanverðan Faxaflóa, eftir að hæstv. atvmrh. hefur haldið sína ræðu. Annars skal ég geta þess, að ég gerði allskilmerkilega grein fyrir því, hvað vekti fyrir fjvn., þegar ég gerði grein fyrir þessari till. Hv. þm. geta ekki ætlazt til þess, að frsm. hafi tíma til þess að svara fyrirspurnum um atriði, sem búið er að lýsa, þó að þeir hafi ekki verið við, þegar grein var gerð fyrir till.
Það. kom sérstaklega fyrirspurn um Lónsfjörð, um það, hvort hugsað væri, að lagt væri fé fram á móti þessari fjárveitingu. Nefndinni var skýrt frá, að búið væri að leggja í þetta verk a. m. k. 15 þús. kr. Hins vegar liggur það ekki skýrt fyrir, hvort það hafi komið að fullu gagni, sem búið er að vinna þar, því að vitað er um, að nokkuð hefur fyllzt upp af grefti, sem búið var að gera þar.
Enn fremur lá fyrir ósk og lausleg áætlun frá vitamálastjóra um það, að það þyrfti að leggja í þetta verk 20–30 þús. kr. (PZ: Með núlli aftan við). Nú geri ég ráð fyrir, að ef farið yrði að vinna þarna og notaðar þessar 10 þús. kr., sem heimilaðar eru nú samkv. till. fjvn. og þá samkv. fjárl., ef till. verður samþ., þá sé sú hugsun bak við þetta, að verkinu verði lokið. Og þá þarf til þess, eftir þessu dæmi, svo mikið fé, að þessar 10 þús. kr. yrðu ekki nema 1/3 eða 4 af því, sem verkið kostaði allt.
Sú trygging, sem fjvn. setur fyrir þessum 10 þús. kr., er, að þær verði því aðeins greiddar, að vitamálastjóri telji, að verkið sé framkvæmanlegt og geti komið að fullum notum.