05.05.1941
Efri deild: 52. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 764 í B-deild Alþingistíðinda. (1853)

137. mál, afla og útgerðarskýrlsur

Frsm. (Ingvar Pálmason) :

Þetta mál er flutt af sjútvn. að tilhlutun Fiskifélags Íslands. Þær breyt., sem farið er fram á að gera á gildandi l. um aflaskýrslur, eru aðallega þær, að í frv. er gert ráð fyrir, að söfnun aflaskýrslna hafi Fiskifélag Íslands eitt með höndum. Fram að þessu hafa menn þurft að gefa skýrslu líka til Hagstofu Íslands, en hér er ætlazt til, að Fiskifél. geti látið hagstofunni þessar skýrslur í té, jafnóðum og þær berast.

Í annan stað er gert ráð fyrir, að skýrslurnar verði nokkuð fyllri heldur en þær hafa verið og taki til fleiri aðila. Í þriðja lagi er ætlazt til, að gefnar séu skýrslur um útgerð landsins, t. d. um bátafjölda og annað slíkt varðandi útgerðina, sem ekki hefur verið lögákveðið hingað til. Fiskifélagið telur nauðsynlegt að fá inn í 1. upplýsingar um útgerðina. Sjútvn. mælir með því, að frv. nái fram að ganga, og tel ég óþarfa að hafa lengri framsögu, enda er málið vel undirbúið.