06.05.1941
Efri deild: 53. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í B-deild Alþingistíðinda. (1873)

126. mál, veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Ég vildi, áður en gengið er frá frv. sem lögum, taka fram, að ég skil ákvæði þess svo, að þar sé aðeins átt við veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar og á sjómannadaginn, er ekki t. d. við hvaða kappróður sem er, þann sem til íþrótta mætti teljast. Í öðrum lögum er íþróttamönnum leyft að hafa slíka veðmálastarfsemi í sambandi við íþróttakappleika almennt, og sá réttur verður ekki sterkur með þessu frv. Sjómenn eiga á hinn bóginn sanngirniskröfu á að fá að afla fjár á sjómannadaginn á þennan hátt í þeim tilgangi, sem frv. greinir.