24.05.1941
Sameinað þing: 20. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í B-deild Alþingistíðinda. (188)
1. mál, fjárlög
Frsm. (Bjarni Bjarnason) :
Fjvn. hefur nú að mestu leyti lokið sínum störfum, og brtt. hennar liggja nú fyrir til umr. Mun ég fylgja þessum till. úr hlaði með nokkrum orðum. Þrátt fyrir það, að n. gerir sér far um að vera víðsýn og taka tillit til sem flestra nauðsynjamála, gat hún ekki tekið til greina nema nokkurt brot af því, sem óskir liggja fyrir um. Vel má vera, að fjvn. hafi ekki með öllu valið það úr, sem réttast var. Samt hefur það verið reynt, og um ágreining var ekki að ræða, svo að teljandi sé. Brtt. þær, sem fyrir liggja frá öðrum hv. þm. en fjvn., benda ekki í þá átt, að n. hafi gengið of langt, því að þeir ganga lengra hvað nokkrar upphæðir snertir, þó að hv. þm. sé ljóst, að allverulegur greiðsluhalli verður á fjárl.
Ég ætla þá að snúa mér að brtt. sjálfum og skýra þær dálítið. Eru þá fyrst brtt. á þskj. 594. Fjvn. hefur ekki séð sér fært að hækka tekjuliðina umfram það, sem frá er greint á þessu þskj. Hæstv. fjmrh. taldi einnig öllu réttara að afgreiða fjárlögin með greiðsluhalla heldur en að hækka tekuliðina umfram það, sem hóf væri á. Hækkunartill. við tekjuliði fjárlfrv. eru aðeins við 2. og 3. gr., eins og brtt. á þskj. 594 sýna. Um lækkun á fjárlfrv. sjálfu hefur ekki verið að ræða. Fjvn. hefur ekki séð sér þess nokkurn kost að gera lækkunartill. um þær fjárveitingar, sem fjárlfrv. gerir ráð fyrir, svo að teljandi sé. Ég læt þessi fáu orð nægja um brtt. fjvn. snertandi tekjuliðina, en mun nú víkja nokkuð að hækkunartill.
Fyrsta hækkunartill. er við 12. gr. Eru það smá-læknisvitjanastyrkir, sem hv. þm. er kunnugt um, enda eru þeir einnig í fjárlfrv. og fjárlögum undanfarinna ára, og þurfa þær því ekki skýringar við. Einnig eru hækkanir á upphæðum, sem ætlaðar eru til þess að byggja læknisbústaði og sjúkraskýli, og munu þær hækkanir aðallega vera í sambandi við sjúkraskýli á Höfn í Hornafirði. Enn fremur eru nokkrir vaxtastyrkir, sem ekki þurfa skýringar við. Er þarna einn nýr liður, Hróarstunguhérað með 900 kr., en hinir vaxtastyrkirnir munu vera í frv. sjálfu. Þá eru ekki fleiri brtt. við 12. gr.
Við 13. gr. á fjvn. allmargar brtt., og er ekki ástæða til að fjölyrða um þær. Þessar brtt. eru í þá átt að hækka fjárveitingu til einstakra vega, sem n. hefur fallizt á við endurskoðun á sínum fyrri verkum, snertandi þá gr. — 7. till., við 13. gr., er um byggingu á ferjubát á Dýrafjörð, sem notaður væri til samgangna á firðinum. En með því að samgmn. beggja d. hafa gert till. um, að greiddur verði á þessu ári 2500 kr. styrkur í sama skyni, án þess þó að þessa sé getið í sundurliðun nefndarálitsins, þá get ég að sjálfsögðu fallið frá þessari till., ef það kemur fram hjá hv. frsm. samgmn., að hún ætlist til, að veittar verði 2500 kr. í þessu skyni á árinu 1941. Ég vildi láta þessi orð falla, af því að þessarar fjárveitingar er getið síðar í nál., þar sem sundurliðunin er gerð. (GSv: Má ég skjóta því inn í, að sundurliðunin er fyrir árið 1942.) Ég þakka fyrir skýringuna. Ég hafði ekki athugað þetta og álit betra fyrir þetta litla fyrirtæki, að till. samgmn. nái fram að ganga. Að fenginni þessari skýringu frá frsm. samgmn. get ég fyrir hönd fjvn. tekið aftur 7. till. á þskj. 594.
Næst koma till. snertandi hafnarbætur, og sé ég enga ástæðu til að fara að ræða um hverja eina þeirra. Þær eru í sjálfu sér hliðstæðar vegunum, og hv. þm. er vel ljóst, að þetta eru aðallega lendingarbætur, sem um leið eru samgöngubætur. Á þessu þskj. eru ekki fleiri brtt. við 13. gr. En á þskj. 604 eru tvær brtt. við 13. gr. Önnur er um 5000 kr. framlag til Meðallandsvegar, nýr liður, sem hafði fyrir vangá ekki komizt inn á þskj. 594, og er hér með tekinn upp. Hvað snertir 2. brtt. á þskj. 604 er aðeins um að ræða breytingu á orðalagi frá því, sem er í frv. Þar er gert ráð fyrir, að þessi 50000 kr. fjárveiting til hafnargerðar á Skagaströnd sé lokagreiðsla, en með því að áætlun um þetta fyrirtæki hefur nokkuð breytzt, sér n. ekki ástæðu til annars en fella þetta ákvæði niður.
Þá koma brtt. við 14. gr. á þskj. 594, og er þá fyrst til Björns Guðfinnssonar til kennslu í setningafræði og málfræði nútímaíslenzku, 2000 kr. Þetta mál hefur nokkuð verið athugað, bæði í menntmn.. Nd. og einnig í fjvn. Háskólaráðið hefur lagt nokkra áherzlu á stofnun dósentsembættis við heimspekideild háskólans í setningafræði og málfræði nútímaíslenzku. Einnig hefur háskólaráðið þau sjónarmið í þessum efnum, að slíkur kennari æfði einnig nemendur sína í því að kenna móðurmálið. Ráðuneytið er þessu máli fylgjandi, en þó hefur dregizt nokkuð, að eitthvað væri gert í málinu. Ráðuneytið segir í bréfi sínu til menntmn., að það álíti eðlilegra að heimila aðeins framlög til greiðslu á þessu, meðan reynsla er að fást um gagnsemi slíks embættis, en ef þessi skipan gæfist vel, mætti alltaf stofna fast dósentsembætti síðar. Nú má vel vera, að þessi fjárupphæð sé nokkru lægri heldur en þarf til þess að launa dósent, en fjvn. leit svo á, að þetta gæti verið sem byrjun, og ríkisstjórnin hefði þá framkvæmt annað eins og það að bæta við þessa fjárupphæð, ef hún teldi þess þörf. Þetta fyrirhugaða embætti hefur að vísu verið bundið við nafn þessa sérstaka manns; Björns Guðfinnssonar, en hann er nú kennari í menntaskóla Reykjavíkur, og ýmsir líta svo á, að hann geri hvergi meira gagn en þar, og vilja því ófúsir flytja hann í háskólann. En vitanlega þurfa í báðum þessum skólum að starfa vel færir kennarar, til þess að vinna gegn því, að móðurmálskunnáttu hraki. Ýmsir málsmekksmenn telja, að málið sé í afturför og mikilli hættu.
Þá koma tvær till. um styrk til einstakra manna, og er þá fyrst styrkur til Ólafs Jóhannessonar til að stunda lögfræðinám í Ameríku, 2000 kr. Hann ætlar sér að nema sérstaklega ameríska réttarlöggjöf og mun þurfa til þess langt nám. Hann kvað vera mjög góður námsmaður, enda hefur hann meðal annars notið þess, þegar þessi fjárveiting var samþ. í n.
Þá er annar ungur maður, Bjarni Jónsson, sem hér er lagt til, að fái 2000 kr. styrk til framhaldsnáms í Ameríku.
14. brtt. er um Snorragarð í Reykholti, og er það mál öllum kunnugt. Hugmyndin var, að Snorragarður yrði fullbúinn á 700 ára dánarafmæli Snorra Sturlusonar, en það er í haust. Hvort þetta tekst, skal ég ekki segja um, en fjárveitingin er hækkuð með það fyrir augum, að hægt sé að koma þessu verki sem mest áfram í sumar.
Þá er till. um að hækka framlag til íþróttasjóðs úr 60 þús. kr. upp í 75 þús. kr. Íþróttanefnd átti tal við fjvn. og mæltist til þess, að upphæðin yrði hækkuð í 100 þús. kr., vegna hinna mörgu beiðna um fjárframlög til íþróttamála. Nú hefði fjvn. fús viljað verða við óskum íþróttan., en með því að fjvn. getur aldrei fullnægt óskum manna, gerði hún það ekki heldur hvað þetta snerti, en vill hækka liðinn um 15 þús. kr., þó með þeim skilmálum, sem íþróttan. er ljóst, að 5 þús. kr. fari til sundlaugarinnar í Hveragerði, og er það áhugi Lárusar Rist og þarfir ýmissa skóla og íþróttafél. á Suðurlandi, sem þarna er tekinn til greina; Lárus Rist hefur unnið manna mest að byggingu þessarar sundlaugar, og sundskyldan krefst fjölgunar á sundlaugum.
Þá er till. um framlag til íþróttahúss skóla og íþróttafélaga Akureyrar, gegn jafnmiklu framlagi annars staðar að, 100 þús. kr. Skólar og íþróttafélög á Akureyri hafa orðið sammála um að óska eftir aðstoð til þess að byggja sameiginlegt íþróttahús. Einn skóli er þó hér undanskilinn, en það er menntaskóli Akureyrar. Telur skólameistari, að skólanum sé nauðsynlegt að fá eigið íþróttahús, og telur menntaskólann ekki geta hagnýtt sér þetta sameiginlega íþróttahús bæjarins. Hann skrifaði fjvn. ýtarlegt bréf um þetta mál og einnig önnur mál, og n. viðurkennir fyllilega, að hans málstaður eigi rétt á sér. Hins vegar telur n., að vel sé kleift fyrir menntaskólann sem aðra skóla bæjarins og íþróttafélög að nota eitt og sama hús, ef það væri vandað og byggtá góðum stað. En í sambandi við þetta vil ég geta þess, að Sigurður Guðmundsson skólameistari hafði einnig nokkuð annað í huga, þegar hann bað um styrk til byggingar íþróttahúss við menntaskólann, sem sé, að hægt yrði að bæta úr því, að bókasafn skólans, náttúrugripasafn og eðlisfræðisafn er geymt í timburhúsi við mikla brunahættu. Þetta er íhugunarvert, og ég vil beina því til hæstv. ríkisstj., að þó að fjvn. sjái sér ekki fært að taka þessa fjárveitingu upp nú, er mikil þörf þess, að málið verði tekið til athugunar. Það er á það bent í bréfinu, að bæði eru í náttúrugripasafninu ágætir gripir og fágætar og dýrar bækur í bókasafninu.
Á þessu þskj. eru ekki fleiri brtt. við 14. gr., eri á þskj. 597 eru 2 brtt. við 14. gr. Sú fyrri er þess efnis, að 24000 kr. komi til endurbóta á gömlum íbúðarhúsum á prestssetrum. Hefur farið fram athugun á því, hvernig ástatt er um byggingar á prestssetrum, og hefur komið í ljós, að ástandið er viða bágborið, en til þess að bæta nokkuð rækilega úr þessu, þyrfti a: m. k. 50 þús. kr. N. hefur ekki séð sér fært að taka upp alla þá upphæð, enda mætti gera nokkrar verulegar húsabætur fyrir það fé, sem lagt er til, að varið skuli til þessa. Yrði síðan sennilega haldið áfram á sömu braut.
Þá kemur 2000 kr. styrkur til Þorbjörns Sigurgeirssonar, til framhaldsnáms í eðlisfræði og stærðfræði. Hann kvað vera mesti snillingur í þessum fræðigreinum, og n. fannst, að hann mundi vera styrksins maklegur.
Við 15. gr. eru nokkrar brtt. á þskj. 594. Fyrst að styrkur til bókmenntafélagsins hækki upp í 8000 kr. og til norræna félagsins upp í 3000 kr. Þurfa þær brtt. ekki skýringar við. Þá kemur nýr liður, til Hallgríms Helgasonar, til útgáfu á þjóðlagasafni, 2500 kr. Hallgrímur er áreiðanlega mjög vel að sér í sinni grein og mörgum Íslendingum að góðu kunnur úr útvarpinu. Hann er mjög þjóðlegur á sviði sönglistarinnar.
Þá kemur smáhækkun til þjóðræknisfélags Íslendinga, úr 3000 kr. í 5000 kr.
Á þskj. 597 eru 3 brtt. við 15. gr. Til bæjarbókasafns Reykjavíkur nokkur hækkun, upp í 8000 kr. Til stj. þjóðvinafél. og menntamálaráðs, til útgáfu 1. bindis Íslendingasögu, nýr liður, 6000 kr. Um þessa útgáfu er það að segja, að það er ákveðið að hefja útgáfu á Íslendingasögu allt frá landnámstíð til 1918. Er áætlað, að hún verði í 10 bindum, og komi út 1 bindi á ári, fyrsta bindið, sem út kemur, verður sennilega ritað af próf. Árna Pálssyni.
Þá hefur verið í fjárl. undanfarin ár 1200 kr. styrkur til leiklistarskóla Soffíu Guðlaugsdóttur. Ungur leikari, Lárus Pálsson, hefur einnig sótt um styrk til leiklistarskóla. N. vildi sinna honum eitthvað og setja þetta hvort tveggja í einn lið, 2400 kr., 1200 kr. til hvors. — Þá eru ekki fleiri brtt. við 15. gr.
Við 16. gr. eru eins og oft vill verða fjárfrekustu till. Fyrst kemur hækkun til bygginga í sveitum, úr 125 þús. kr. í 300 þús. kr. Fyrir þinginu liggur nú frv. til l. um breyt. á l. um byggingar- og landnámssjóð. Í 1. gr. þess er gert ráð fyrir, að styrkur til byggingar- og landnámssjóðs hækki í 300 þús. kr. og enn fremur, að niður falli tillag tóbakseinkasölu ríkisins. Þá er í 2. gr. ákveðið, að ríkissjóður leggi árlega fram 250 þús. til að styrkja endurbyggingar. Till. fjvn. er í samræmi við væntanleg l. um þetta efni. Þá er brtt. um jarðakaupasjóð. N. hefur skipt þeirri fjárhæð, sem um er að ræða, í tvennt, a-lið, til rekstrar 100 þús. kr., og b-lið, til jarðakaupa 30 þús. kr. Það leiðir af sjálfu sér, að ef keyptar eru jarðir, sem eru svo skuldum hlaðnar, að bændur geta ekki undir risið, þarf að ganga þannig frá skuldunum, að möguleiki sé fyrir ábúanda að rísa undir þeim. Það hefur í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð, og n. hefur orðað þetta til rekstrar.
Þá er 22. till. á þskj. 594, til byggingarsjóða kaupstaða og kauptúna, að fyrir 120 þús. kr. komi 250 þús. Þetta er einnig í samræmi við frv., sem nú liggur fyrir þinginu. Í 1. gr. þess er gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi árlega í þennan byggingarsjóð 150 þús. kr., og jafnframt falli niður tillag til sjóðsins samkv. l. um einkasölu ríkisins á tóbaki.
Þá eru nokkrir liðir um fyrirhleðslur á vatnasvæðum. Þverá og Markarfljót eru alþekkt vatnasvæði, en um b-lið þessarar till. 1 og 2 er það að segja, að það mun vera á leiðinni brtt. við þá, og vil ég því bíða með að skýra þá nánar.
24. brtt. er um styrk til dýralækninga, hækkun úr 3050 kr. upp í 4900 kr., og er hækkuninni skipt þannig :
Til nýrra dýralækna eða manna, sem dýralækningar stunda :
Sigtryggs Jakobssonar
300 kr
Kristjáns Þórðarsonar
300 –
Sigurðar Gíslasonar
300 –
Hækkanir til þeirra, er áður hafa
notið styrks :
Guðmundar Andréssonar
200 kr.
Ágústs Jónssonar
200 —
Eggerts Magnússonar
100 —
Brands Einarssonar
150 —
Ólafs Guðmundssonar -
150 —
Valdimars Stefánssonar -
150 —
Samtals
1850 kr.
Þá kemur nýr liður, til Odds Magnússonar, til mjólkurfræðináms, 800 kr. En næsta till. er um að veita 8000 kr. til kaupa á bókasafni dr. Bjarna Sæmundssonar handa fiskideild, en hún er tekin aftur, vegna þess að sams konar brtt. er á öðru þskj., ofurlítið víðtækari.
27. till. er nýr liður, til vegar í Seljalandsdal á Ísafirði til að greiða fyrir samgöngum vegna mátekju.
28. till. er um 2000 kr. styrk til Jóhanns Kristjánssonar, til að smíða eldavél. Eldavélar hans eru orðnar nokkuð útbreiddar og þykja ágætar. Hann mundi verðskulda að fá meira fé til styrktar þessari starfsemi. Hann vantar vinnustöð til að geta framleitt svo mikið, að hann fullnægi eftirspurninni.
29. till. er um hækkun til. landssambands iðnaðarmanna, að fyrir 6500 kr. komi 10 þús. kr. Það má skoða þetta hliðstætt fjárveitingu til Búnaðarfélags Íslands og Fiskifélags Íslands. Má vel vera, að sambandið verðskuldi meira en þetta. En n. hefur nú ekki gert hærri till., en þar sem iðnaðarstarfsemi færist í aukana, er sambandinu nauðsyn að fá þetta.
Þá kemur nýr liður til skrifstofunnar Íslenzkrar ullar, 10 þús. kr. Það hafa verið nokkuð skiptar skoðanir um, hvernig sú starfsemi er framkvæmd, en ég tel, að hér sé um verk að ræða, sem er þess vert, að því sé gaumur gefinn. Undanfarið hafa verið á markaðnum prjónavörur úr íslenzkri ull, sem hafa verið til skammar. En þær tvær konur, sem hér er um að ræða, hafa bætt íslenzkan ullariðnað stórkostlega. Á þeirra vegum er ekki verzlað með annað en fyrirmyndarvinnu. Það er einnig til ætlazt, að þessi starfsemi eigi að verða til leiðbeiningar, fræðslu og fyrirgreiðslu um starfið, en þessar áhugasömu konur telja ekki unnt að reka starfsemina styrklaust. Í tvö ár hefur ríkisstj. veitt til þessa álíka upphæð hvort árið og hér er lagt til. Báðar þessar konur eru þekktar að myndarskap og forustuhæfileikum. Ég verð því að telja, að því fé sé vel varið, sem þeim er veitt.
Á þskj. 597 eru enn nokkrar brtt. við 16. gr. Það er þá fyrst nýr liður, til Höskuldar Björnssonar málara, byggingarstyrkur, 2400 kr. Hann hefur eitt sinn áður fengið nokkurn styrk, og var talið, að vilyrði væri fyrir framhaldsstyrk, en fyrir því liggja engin gögn.
Þá koma nokkrar smáhækkanir, fyrst til mæðrastyrksnefndar úr 2000 kr. í 3000 kr. Starf mæðrastyrksnefndar er orðið þekkt hér í bænum, og n. hefur unnið mikið gagn í þágu kvenna, sem eiga við erfið kjör að búa.
Næst er hækkun til Ungmennafélags Íslands, að styrkur til skóggræðslu og bindindisstarfsemi verði 4000 kr., en til ræktunarleiðbeininga komi 2000 kr. Erlendis eru æskulýðsfélögum veittar fjárhæðir til að geta stofnað til ferðalaga á milli ungmennafélaga til að leiðbeina í ræktunarstarfsemi. Þetta mun vera sniðið eftir fyrirmyndum frá nágrannaþjóðunum.
Á þskj. 604 er brtt. um nýjan lið, til Ásgeirs Einarssonar dýralæknis, til rannsókna á smitandi júgurbólgu í kúm, 1000 kr. N. taldi rétt að verða við þessu, þar sem júgurbólga er smitandi og gæti orðið stórhættuleg fyrir landbúnaðinn. Ef dýralæknar gætu bætt eitthvað um í þessu efni, er fé til þess vel varið.
Þá er á sama þskj. till. um 10000 kr. fjárveitingu til kaupa á bókasafni og vísindaáhöldum dr. Bjarna Sæmundssonar. Það hefur eindregið verið óskað eftir því frá kennslumrn. og fiskideild háskólans, að fé yrði veitt í þessu skyni. Auk merkilegs bókasafns er hér einnig um að ræða smásjá og önnur rannsóknargögn.
Við 17. gr. eru tvær brtt.: Til Rauðakrossins, að fyrir 2000 kr. komi 4000 kr., og til slysavarna, að fyrir 8000 kr. komi 15000 kr. Starfsemi Slysavarnafél. er þjóðkunn, og þyrfti langt mál til að skýra frá henni. Ég mun því ekki eyða tíma í það nú, en með því að bæði það og Rauðikrossinn eru þjóðkunn félög, er hafa aflað sér mikilla vínsælda og trausts, veit ég, að þessu verður vel tekið af hv. þm. Fjvn. hefði fúslega viljað gera enn betur við þau, en hún verður hér eins og endranær að fara varlega í sakirnar.
Ég held, að ég hafi hlaupið yfir eina tili. við 16. gr., smáupphæð til bandalags ísl. farfugla. N. leggur til, að því verði veittar 1500 kr. Markmið þess er gagnlegt og athyglisvert og í stuttu máli þetta: Að efla og þroska íslenzku æskuna; að gefa þessari æsku tækifæri til að njóta aukinnar útivistar og útiveru; að koma upp gistihúsum til þess að gera mönnum kleift að ferðast um landið gangandi eða hjólandi; að gefa út rit um ferðalög og ferðaminningar. Það er rétt, að þessi hreyfing eða þetta mál varðar alla þjóðina.
Þá er enn brtt. við 17. gr., um lítils háttar hækkun til mæðrastyrksnefndarinnar. Það er vitað, að þessi nefnd hefur hér í Reykjavík beitt sér fyrir því, að dvalarheimili séu rekin fyrir mæður, sem eiga erfitt með að veita sér dvöl utan bæja, og er hér um að ræða smáaukningu til þessarar nefndar, 500 kr.
Um brtt. við 18. gr. mun ég ekki tala, því að það eru persónulegir styrkir, sem skýra sig sjálfir, og enn fremur niðurfellingar einstakra dáinna einstaklinga.
Þá er hér 42. brtt., við 22. gr., um að endurgreiða nokkrum kennurum úr lífeyrissjóði, og þarf hún engrar skýringar við.
43. brtt. er um að veita Jóni Engilberts listmálara styrk til húsbyggingar. Þessi maður kom til Íslands, þegar Danmörk var hernumin, og eftir því, sem nefndin hefur fengið upplýsingar um, þá er hann illa settur hvað húsnæði snertir. Um listir hans vil ég ekki fjölyrða hér. Ég held, að honum hafi gengið sæmilega, meðan hann var erlendis, en ég mun ekki dæma um það, hvort hann verðskuldar þessa aðstoð. N. er ljóst, að J. E. er efnalaus maður og í miklum vandræðum vegna húsnæðisleysis.
Þá er 44. brtt., um að kaupa verkstæðishús og tilheyrandi áhöld Valgerðar Helgadóttur, ekkju Bjarna í Hólmi. Þetta mál var til umr. í fyrra, og var þá samþ., en á nokkuð öðrum grundvelli. Ýmsir hv. þm. eru vantrúaðir á, að þarna sé hægt að framleiða túrbínur til rafmagnsstöðva fyrir lægra verð en þar, sem aðstæður virðast vera betri. En ef ég kærði mig um, þá gæti ég nefnt dæmi, sem sýna það, hvað túrbínur eru ótrúlega miklu ódýrari austur í Hólmi en hér í höfuðstaðnum. Og munurinn er svo gífurlegur, að hann er mjög ósennilegur, og vildi ég óska þess, að það sýndi sig í framtíðinni, að með því að reka þetta iðjuver áfram, þá takist að ná því takmarki að létta undir með þeim mönnum, sem ráðast í að reisa rafmagnsstöðvar út um land. Enn fremur vænti ég þess, að reynslan fyrir þessu geti verkað þannig, að sú tortryggni, sem er hjá ýmsum mönnum í þessu efni, hverfi.
Þá er 45. brtt., um að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að vernda hina fornu skálabyggingu á Keldum frá skemmdum. Þessi skáli er sagður mjög gamall og talinn merkur forngripur. Hann mun vera frá dögum Sturlunga, og er hann vel stæðilegur, enda vel við haldið enn þá, og er ekki að undra, þó að fornminjavörður og aðrir, sem áhuga hafa fyrir fornum hlutum, hafi einnig áhuga fyrir því, að þessi skáli eyðileggist ekki. Vitanlega er hann orðinn svo gamall, að hans bíður ekkert annað en tortíming, verði ekki hafizt handa um viðhald hans og verndun.
Þá er síðasta brtt. á þskj. 594, sem er við 23. gr., að heimila Búnaðarbanka Íslands að greiða í eitt skipti fyrir öll tveim þar til greindum einstaklingum dálitla fjárupphæð.
Þá er brtt. við 22. gr. á þskj. 597. Það er 11. till. á því þskj., að greiða nokkurn útgáfustyrk til Þjóðvinafélagsins. og menntamálaráðs vegna útgáfu á Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Þrátt fyrir það, að fornritaútgáfan er mjög vönduð, þá er hún þó ekki keypt nema lítið í byggðum landsins, og þykir hún bersýnilega of dýr. Í sumum sýslum eru jafnvel ekki seld nema 4 til 5 eintök. Umtal hefur farið fram milli formanns fornritaútgáfunnar og menntamálaráðs, að samstarf verði um útgáfu Heimskringlu, í 3 bindum, og kemur fyrsta bindið út í haust, á 700 ára dánarafmæli höfundarins. Þá er ráð fyrir gert, að fornritaútgáfan gefi út sérstaka útgáfu af þessu riti fyrir fasta áskrifendur og kaupendur, en menntamálaráð gefi út sama texta á góðan, en þynnri pappír, til þess að reyna að koma þessari útgáfu inn á þúsundir heimila, sem fram að þessu hafa ekki getað keypt hana.
Það má vel vera, að mér hafi láðst að skýra einhverja brtt. en þó er ég ekki viss um, að svo sé, en ef svo er, þá bið ég meðnm. mína og aðra hv. þm. að gera sínar athugasemdir.
Hækkunartill. n. við þessa umr. eru því sem hér segir:
12. gr. ...................... 5900 kr.
13. gr. A 34500 kr.
13. gr. B 2000 —
13. gr. C . 85500 —
122000 —
14. gr. ...................... 149000 –
15. gr. ...................... 15200 –
16. gr. ...................... 572150 –
17. gr. ...................... 10500 –
18. gr. ...................... 1980 –
876730 kr.
÷ 1018 -
875712 kr:
Hækkanir eru því 876730 kr., og lækkanir 1018 kr., eða hækkanir umfram lækkanir 875712 kr.
Tekjur á rekstrarreikningi eru því, með hliðsjón af brtt. fjvn. í frv. eins og það liggur nú fyrir, 23464411 kr., en gjöld 23753870 kr., og er rekstrarhalli því 289459 kr., en greiðslujöfnuður óhagstæður um 1719506 kr.
Þannig er þá niðurstaða fjárlagafrv. eftir till. fjvn. N. er það vel ljóst, að slík útkoma er á annan veg en æskilegt má telja.
Á venjulegum tímum væri óforsvaranlegt að afgreiða fjárlögin með greiðsluhalla, sem nemur, eins og fyrr er greint, fyllilega 1.7 millj. kr., en með hliðsjón af því, hversu óútreiknanlegt allt fjármálaviðhorf er nú, og með tilliti til þess, að þjóðstjórn fer nú með völd í landinu, með heimild frá Alþingi til þess að taka til sinna ráða, ef gjöldin reynast óviðráðanleg, þá má segja, að þetta sé afsakanlegt.
Ég vil og geta þess, að hæstv. fjmrh. lagði frekar til, að fjárlögin yrðu afgreidd með greiðsluhalla, en að tekjurnar væru áætlaðar ógætilega háar og á þann hátt gerður jöfnuður.
Ástæða er til þess að vekja athygli á því, að hér liggja fyrir nokkrar brtt. frá einstaka þm., sem eru nokkuð háar, og ef mikið af þeim verður samþ., mun það verka til enn óhagstæðari fjárlaga ársins 1942. Þessar till. munu hafa í för með sér hækkun, sem nemur hátt á annað hundrað þús. kr., og fleiri munu vera á leiðinni. Eftir því, sem ég hef heyrt um þessar brtt., gæti ég hugsað mér, að upphæð þeirra mundi nema ekki undir 1 millj. kr., en væntanlega verður talsverður hluti þeirra felldur.
Á þessu sést, að þm. er ekki fullnægt með till. fjvn., og enn á eftir að sýna sig, hvað samþ. verður af þeim brtt., sem fyrir liggja. Nefndin hefur ekki haft tækifæri til þess að athuga brtt., sem fram hafa komið, og mun ég því ekki minnast á þær nú, bæði vegna þess, að það er venja að ræða ekki um brtt., fyrr en flm. hafa rökstutt þær, og eins af því, að ég hef ekki umboð frá fjvn. til þess að leggja með þeim eða móti.
Þrátt fyrir óhagstæða niðurstöðu fjárlagafrv., vildi ég þó vænta þess, að brtt. fjvn. verði samþykktar.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta að svo komnu máli.