15.04.1941
Neðri deild: 35. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (1898)
79. mál, landnám ríkisins
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) :
Ég skal ekki karpa við hv. 5. þm. Reykv., en ég verð að hrella hann með því, að það kom fram í ræðu hans alveg óskiljanleg vantrú á ræktuninni. Það er eins og honum sýnist öllu borgið, ef nóg landrými fylgir jörð, en smábýlabúskapinn, sem er aðallega byggður á ræktun, kallaði hann „kollubúskap“ og álítur, að hann verði til niðurdreps.
Ég vil samt segja hv. þm., að eins og búskapurinn er orðinn, er meira undir því komið að hafa landið ræktað, þó að lítið land sé, en hin stóru óræktuðu landrými. Og 10 ha. ræktaðir eru ekkert smábýli. Við vitum það allir, að það er á túninu, sem bændurnir lifa, en ekki á óræktaða landinu.
Ég vil nefna eitt lítið dæmi, um kot, sem var byggt fyrir mannsaldri úr annarri jörð, sem há bjó einn bóndi, en nú hefur þessu verið skipt í 3 smábýli, þar sem bóndinn, sonur hans og tengdasonur búa betra búi en einn bóndi áður með sama beitilandi.
Hv. þm. vildi segja, að ekki yrði það til að létta lífsbaráttuna til sveita, að þannig yrði flutt fólk í sveitirnar. Þetta er misskilningur. Það, sem aðallega vakir fyrir okkur flm., er að hjálpa þeim, sem hafa alizt upp við sveitabúskap og eru vel til hans fallnir, til að geta haldið því starfi áfram, og ég er sannfærður um, að það verður til að styrkja lífsafkomu þeirra, að bændum sé fjölgað, því að hvert stráið styður annað.
Um það, að með þessu frv. séu bændur sviptir markaði, vil ég endurtaka það, að fjöldinn af þeim mönnum, sem mundu fá land til ræktunar, eru ekki kaupendur afurða frá bændum, af því að þeir hafa ekki efni á því.
Ég hygg, að aths. hv, þm. N.-Þ. um orðalag í 3. gr. frv. sé alveg rétt. „Landnám í sveitum“ getur átt við líka í sveitum, sem liggja að sjó. Það er sjálfsagt, að landbn. athugi þetta fyrir 3 umr.