12.05.1941
Efri deild: 58. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (1938)

95. mál, lax og silungsveiði

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Það lá hér fyrir landbn. hv. Ed. frv., sem búið var að ganga í gegnum hv. Nd., og var það í fjórum gr. og gerði ekki miklar breyt. á laxveiðal. En þó er sú meginbreyt. í þessu frv., sem lá fyrir, að 95. gr. l. frá 1932 um lax- og silungsveiði var felld niður, sem var bráðabirgðaákvæði um frestun á skipun þeirrar stjórnar, sem gert var ráð fyrir í 11. kafla þeirra l. Einnig er ákvæði um það í sömu gr. frv., að nú komi til framkvæmda lítils háttar styrkveiting til fiskiræktar til þess að gera ár fiskgengar og styrkja laxaseyðakaup. Heimildin var í 12. kafla. 1. frá 1932, en var með bráðabirgðaákvæði þessarar 95. gr. frestað að sinni. En samkvæmt frv. þessu, sem hér liggur fyrir, verður þessari frestun lokið.

2. gr. frv. er um það, hvernig megi haga sér um heimild til félagsveiði á silungi á félagssvæðum og eins heimild fyrir fiskiræktarfélög til þess að stofna veiðifélög.

Þá höfum við nm. orðið sammála um að taka, eftir till. veiðimálastj. og hæstv. landbrh., til greina hér nokkur nýmæli, sem frv. hefur í sér fólgin, sem flest eru aðeins til þess að gera skýrari og nákvæmari ákvæði núgildandi l. En í einstaka tilfellum breyta þau nokkru.

Fyrsta breyt. er um það, þegar menn eiga óskipt veiðivötn saman. Þá var það þannig áður, ef menn heimtuðu mat, þá mátti heimta mat aftur að einu ári liðnu. En réttara þótti að láta matið gilda til 5 ára, og er það sama tímalengd og arðskrár gilda.

2. brtt. er um sjávarveiði á laxi, og sé það komið undir hlutaðeigandi ráðherra og veiðimálastjóra, hverjar veiðiaðferðir skuli nota. Sumar veiðiaðferðir í sjó hafa verið taldar skaðlegar fyrir göngu laxins upp í árnar, og þótti n, óeðlilegt að taka veiðivonina af þeim, sem við árnar búa, og færa hana meir til hafsins, því að „guðsgjöf skal ganga, ef gengi vill hafa, jafnt til fjalls sem til fjöru“.

Í gildandi l. er ákvæði, sem heimilar netaveiði á silungi frá 1. apríl til 1. sept. Okkur þótti rétt að láta það sama gilda um stangarveiði, og um það er 3. brtt.

4, brtt. er um nýja gr., er skuli bætast inn í frv., að aðeins skuli leyfa sérstaka veiðiaðferð við stangarveiði. Það hefur ekki áður verið eins rækilega bannað og þessi gr. gerir að nota krók og þríálma öngul til að húkka með fiskinn, sem er meira komið undir óprúttni veiðimannsins heldur en lagni hans við veiðiskapinn, og getur Það eyðilagt veiðina að meira og minna leyti, ef stangarveiði er framkvæmd á þann hátt. Er um að gera að láta ekki fiskinn ganga til þurrðar, en með slíkum aðferðum er hætt við því, jafnvel þó að klak sé sett í árnar. Hvernig fara skal, þegar menn eiga land að ánum sinn hvorum megin, hvar þeir skuli standa við veiðiskapinn og hvar þeir megi draga fisk að landi, mun ekki hafa verið ákveðið áður í l. Í þriðja lagi er hér ákvæði; sem heimilar ráðh., með samþ. veiðimálastjóra, að taka fram fyrir hendur manna, ef honum þykir of margar stangir í senn í sama veiðivatni, svo að liggi við fiskþurrð, og má hann ákveða tölu stanganna og einnig veiðitíma þeirra. Hefur komið fyrir, að eigendur ánna hafa hugsað meira um augnabliks arð og leigt fleiri veiðistengur heldur en telja má hollt fyrir áframhaldandi veiði í viðkomandi á. Þá er ákvæði um, hvernig fara skuli, ef ágreiningur rís um skiptingu veiðitíma eða um leigu eftir veiði. Þá hafa ekki þótt nógu skýr ákvæði um það, hvernig fara skuli um takmörk fiskihverfis, kvísla, ála og þess háttar og hvar aðalstraumlínan sé í ánum samkvæmt því, svo og hverjir skuli skera úr, ef ágreiningur rís um þessi atriði. Hefur það áður verið þannig, að sýslumaður tilnefnir bæði yfir- og undirmatsmenn, en samkvæmt þessari till. skal hann aðeins skipa menn í undirmatið. Í yfirmati skulu þrír menn eiga sæti, sem skipaðir eru af ráðh., og skal einn þeirra tilnefndur af hæstarétti, en annar af veiðimálanefnd.

3. brtt. er um það, að jafnvel þó að menn eigi veiðirétt í ánum, skuli þeir þegar fallnir í sekt, ef þeir eru við veiðistaðinn með ólögleg veiðarfæri, nema þeir sanni, að þeir hafi flutt þau þangað í lögmætum tilgangi. Reynslan hefur verið sú, að þó að menn hafi sézt með net sín við ár, sem hafa verið leigðar út fyrir stangarveiði, hafa þeir sloppið við sektir, þar sem brotið var ekki talið framið fyrr en þessi veiðitæki væru komin í vatnið. Okkur nm. fannst þetta ekki nægilegt, þegar þannig stendur á, og viljum telja brotið fullframið, þegar hin ólöglegu veiðarfæri eru komin á veiðistaðinn, en ekki sé beðið eftir því, að t. d. hyljir séu eyðilagðir með sprengiefni eða veiðimöguleikar skemmdir á annan hátt.

Þetta er nú meginundirstaða þessara brtt. n., og eru þær mest skýringar og leiðréttingar á eldri 1., sem nú gilda um þetta efni.