24.05.1941
Sameinað þing: 20. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í B-deild Alþingistíðinda. (196)
1. mál, fjárlög
Fjmrh. (Jakob Möller) :
Ég þarf ekki margt að segja að þessu sinni. Hv. frsm. gerði grein fyrir því, hvernig niðurstaða fjárl. mundi verða, ef till. fjvn., sem fram eru komnar, næðu samþykki. Og þótt um allverulegar hækkunartillögur væri að ræða frá n., sem nema hátt á 9. hundrað þúsunda, er í sjálfu. sér ekki mikið við það að athuga, — því að sumpart má segja, að þetta séu aðeins leiðréttingar, svo sem brtt. við 16. gr., þar sem lagt er til að færa ýmsar fjárgreiðslur úr ríkissjóði til samræmis við fyrir mæli laga, sem ýmist eru þegar sett eða alveg að því komið, að verði sett, framlög til byggingar- og landnámssjóðs, endurbyggingar sveitabæja, verkamannabústaða í kaupstöðum o. fl. slíkt, sem ráðuneytið bjóst við, að mundi hækka, en vildi láta Alþingi gera um það úrslitatillögurnar. Þetta stendur í sambandi við þá ákvörðun undanfarinna þinga að fresta fjárveitingum, er ýmis lög ákváðu. Nú var hugmyndin að reyna að losna við það, vegna þess að greiðzt hefur úr fjárhagsörðugleikum ríkissjóðs um sinn, hversu langt eða skammt sem verða kann að bíða þess, að hverfa verði aftur að því óyndisúrræði að fresta þessum greiðslum. Þessar hækkanir eru yfirleitt til verklegra framkvæmda, sem gott og nauðsynlegt er að geta hrundið fram, ef fé verður fyrir hendi. En um það er fátt hægt að segja að svo stöddu.
Mér þykir vænt um, að hv. fjvn. hefur fallizt á þá skoðun, að tekjur yrðu að vera nokkuð var lega áætlaðar. Brtt., sem hún hefur gert á þeim liðum, eru í fullu samræmi við reglur ráðuneytisins um tekjuáætlanir. Fasteignaskatt hefur hún hækkað um 50 þús., eða 10%, en tekju- og eignarskatt aðeins um 150 þús., eða 5%, og er sú hækkun svo smávægileg, eins og ástandið er, þegar nákvæm áætlun er óhugsandi, að hún mun ekki valda mótmælum. Áætlunin um tekjur ríkisverzlana er hækkuð frá því, sem er í frv., en ekki svo mikið, að það geti talizt óforsvaranlegt. Síðastl. ár urðu þær miklu meiri, en óvarlegt er að gera ráð fyrir því árið 1942. Sú hækkun er verjandi, sem gerð er, sérstaklega þar sem ekki er líklegt, að horfið verði að því að lækka þar vöruverðið, fremur verði það hækkað; um söluna er hins vegar allt í óvissu.
Þessar hækkanir svara sem næst til þeirra hækkana, sem n. leggur til að gera á útgjaldaliðum, og verður því útkoman eða greiðsluhallinn nálega eins og var í frv. eftir 2. umr., rekstrarhallinn 2'89 þús., en greiðsluhallinn 1719 þús. kr. Til afborgana af lánum eru ætlaðar 1644 þús. kr., og munar þá minnstu, að það jafnist á við greiðsluhallann. Afkoman ætti eftir því ekki að verða verri en það, að skuldir ættu að standa sem næst í stað. Ef illa tekst til með tekjur ríkissjóðs, hefur nefndin, sem kunnugt er, fallizt á að halda í fjárl. heimild til þess að lækka ólögboðin útgjöld ríkissjóðs, eftir því sem þá þætti þurfa til að taka, um allt að 35%.
Síðan gengið var frá frv. við 2. umr., hefur komið fram frv. um tollalækkun, sem ætla mætti, að heimtaði lækkun á áætluðum tolltekjum að sama skapi. Lagt er til að fella niður toll af kornvörum og lækka sykurtoll um helming. En þess ber að geta, að áætlunin byggist á innflutningi ársins 1940, sem var alltakmarkaður á miklu af hinum tolluðu vörum. Ef við gerum ráð fyrir venjulegri verzlun árið 1942, mætti ætla, að þessi brottfelling tolls ynnist upp með auknum innflutningi annarra vörutegunda tollskyldra. Um þetta er náttúrlega hvort tveggja til, en ég lít svo á, að ekki sé ástæða: til að telja áætlunina óforsvaranlega. Eins og um margt annað er þarna ekkert hægt að fullyrða.
Mér þykir einnig vænt um, að n. viðurkennir, að ekki sé rétt að fela það fyrir sér og öðrum, hvaða afkoma getur orðið fyrir ríkissjóði, og að menn verði heldur að horfast í augu við halla á fjárl. en hitt, að skáka í því skjólinu, að tekjur hljóti að fara fram úr áætlun. Ég veit, að Alþingi verður mér sammála um þetta meginatriði í afgreiðslu fjárl. Ég hef svo ekki fleira að segja um frv. almennt.
Hins vegar er ég flm. að tveim brtt. á þskj. 619. Fyrri till. er X. tölul. og á við 14. gr., um að hækka framlag til verzlunarskólans í Rvík og verzlunarskóla sambands samvinnufélaganna úr 10 þús. í 15 þús. og skiptist það milli þeirra í réttu hlutfalli við nemendafjölda þeirra skólaárið 1940–41. Ég hafði gert mér von um, að hv. fjvn. féllist á að skipta þannig milli skólanna, því að það er hin almenna regla, t. d. er héraðsskólar eiga í hlut, að skipta eftir nemendafjölda. En við 2. umr. kom frá n. brtt. um að hafa þetta eins og nú er í fjárl. og skipta til helminga milli skólanna 10 þús. kr. Mér þykir hins vegar rétt, að framlagið hækki samkvæmt vísitölu úr 10 í 15 þús., og yrðu þá sem svarar 40 kr. á nemanda í hvorum skóla um sig.
Aðra brtt. á ég ásamt hæstv. forsrh. á þskj. 619,XXX, við 22. gr., um að kaupa Gullfoss í Hvítá fyrir allt að 15000 kr., eftir því sem um semst, — endurheimild, sbr. fjárveiting í fjárl. 1938, sem hefur ekki verið notuð. Ég kýs endurheimildina heldur en fara eftir l. frá 1938, en tel víst, þar sem sama þing situr og þá var, að till. nái samþykki, — að þingið standi við fyrri vilja sinn að koma í veg fyrir, að fossinn lendi í höndum manna, sem kynnu að vilja nota eignarrétt sinn á kostnað almennings, sem nýtur fegurðar hans, eða hann komist í hendur erlendra manna.
Enn er á leiðinni frá mér brtt. við 22. gr., og vil ég, með leyfi hæstv. forseta, gera grein fyrir henni, fyrst ég er staðinn upp. Hún er um að heimila að greiða Gústaf Sveinssyni lögfr. allt að 2 þús. kr. fyrir samningu efnisyfirlits yfirréttardóma. Þessi maður hefur unnið að þessu verki undanfarið og fengið til þess nokkurn styrk bæði frá málfærslumannafélagi Íslands og háskólanum. Ef það á að komast í fulla framkvæmd, þarf til þess meira fé, og því er farið fram á að heimila ríkisstj. þessa greiðslu, ef um verkið semst og útgáfu þess, er þar að kemur. Verk þetta er talið hafa verulega þýðingu fyrir lögfræðingastéttina og dómgæzlu í landinu, og fleiri aðilar hafa áhuga fyrir því.
Má nokkuð marka þetta af styrkveitingunum. Tel ég því rétt, að heimildin sé veitt, og er stj. þá að sjálfsögðu skylt að sjá um, að styrkurinn komi að því gagni, sem verða má.