26.05.1941
Sameinað þing: 21. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í B-deild Alþingistíðinda. (199)
1. mál, fjárlög
Bergur Jónsson:
Ég á fáeinar brtt. á þskj. 619 og 638, sem ég hygg rétt að gera nokkra grein fyrir. Er þá fyrst 2. brtt. á þskj. 619. Þar er um að ræða tvo vegi í Vestur-Barðastrandarsýslu, Barðastrandarveg og Patreksfjarðarveg til Bíldudals. Hefur verið unnið að lagningu þessara vega nú um nokkurt skeið, en ávallt hefur verið veitt mjög lítið fé til þeirra, þótt nauðsyn sé brýn. Um Patreksfjörð er það að segja, að þar er allstórt kauptún, vel fallið til útgerðar, en gróðurleysi er þar afskaplegt og ræktunarmöguleikar mjög takmarkaðir, því að jarðvegur er óvenjugrýttur og grunnur. Þá er annað,sem er nærri því verra: Í nánd við þorpið eru naumast nokkrir bithagar fyrir kýr. Þarna eru nú um 800 íbúar, og hljóta því að vera þar miklir erfiðleikar um mjólk, nema hægt sé að hafa samband við nærlæga staði, en þangað er yfir sjó að fara eða fjallvegi. Þessar leiðir liggja að sveitum, þar sem er nokkuð mikil ræktun, en bændur eiga í miklum erfiðleikum vegna samgönguvandræða. Einkum eru samgönguerfiðleikar miklir á Barðaströnd. Þá er vegurinn um Tálknafjörð, sem er góð sveit, en gæti verið betur ræktuð, ef samgöngur væru betri. Það væri einnig kostur, sem leiddi af bættum samgöngum, að hafskip þyrftu ekki að koma nema á annan fjörðinn, og mætti þá flytja vörur til hins á bifreiðum.
Ég hafði farið fram á það, að framlagið til Barðastrandarvegar og Patreksfjarðarvegar til Bíldudals yrði hækkað úr 8000 kr. upp í 15 þús. kr. fyrir hvorn um sig, en hv. fjvn. féllst á að hækka það upp í 10 þús. kr. Ég fer nú fram á 12 þús. kr. framlag og tel það ekki ósanngjarnt. Þá hefur hv. n. ekki séð sér fært að taka upp meira en 2500 kr. fjárveitingu til Tálknafjarðarvegar, en ég hafði farið fram á 5000 kr. Ég fer nú að þessu sinni fram á 4000 kr.
Þá er V. brtt. á þskj. 619, þar sem ég fer fram á, að fjallvegafé sé hækkað um 5000 kr., með þeirri aths., að þessum 5000 kr. sé varið til vegabóta á hálsum og heiðum í Austur-Barðastrandarsýslu. Hér er um að ræða mjög stórt svæði, en samgönguleiðir eru þar aðallega um fjöll og hálsa, það er Þingmannaheiði og hálsarnir Klettsháls, Gufudalsháls, Ódrúgsháls og Hjallaháls. Hefur ekki til þessa verið gert ráð fyrir neinu framlagi til vegalagninga á þessu svæði sérstaklega, og teldi ég því sanngjarnt, að þessar 5000 kr. yrðu veittar til þess, en hins vegar hef ég ekki viljað skerða af þessum ástæðum fjallvegaféð til hinna sýslnanna á á landinu. Hins vegar er til gamalt ákvæði um það, að 5000 kr. skuli renna til fjallvega í Barðastrandarsýslu, þótt það hafi eigi verið haldið að fullu, enda sagði einn ráðh. einu sinni, að sýslan væri þannig löguð, að ekki veitti af, þó að allt fjallvegaféð rynni til hennar, og var það vel og réttilega mælt. Þá kröfu vil ég samt ekki gera.
Þá eru XXIII. og XXVIII. brtt. á sama þskj. Er þar farið fram á aðeins 100 kr. hækkun á styrk til tveggja aldraðra manna, Ingivaldar Nikulássonar og Jóns Sigurðssonar. Báðir eru þeir orðnir óvinnufærir. Voru öðrum ætlaðar 200 kr., en hinum 300. Ætti hv. þm. ekki að vaxa það í augum, þó að bætt væri 100 kr. við hvorn þeirra. [Frh.]