07.05.1941
Neðri deild: 53. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í B-deild Alþingistíðinda. (2023)
131. mál, þegnskylduvinna
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :
Ef hv. 4. þm. Reykv. lítur á frv. þetta sem upphaf eða tilraun til almennrar þegnskyldu hér á landi, þá hlýtur hv. þm. að líta svo á, að þetta muni gefast vel, — því ef þetta yrði óvinsælt, þá er um enga hættu að ræða, að það yrði almennt hér.
Ég vona, að þetta gefist svo vel, að það aukist hröðum skrefum, svo það að lokum nái til allra sveita og kaupstaða landsins.
Við flm. frv. höfum tekið tvo hreppa alvarlega. Mér finnst þeim hreppum, sem ekkert vilja með þetta hafa, alls ekki gert rangt til, þótt einhverjir aðrir hreppar vilji það. — Það var alveg rétt, að ég gerði lítið úr þessu, — ég benti á, að hér væri um enga þvingun að ræða, heldur væri hver maður frjáls til þess að leggja fram vinnu sína.
Hv. 4. landsk. bar eins og alltaf mikla umhyggju fyrir lýðræðinu. Hann sagði, að hér gætti ósamræmis milli kaupstaða og sveita. — Þetta er þó aðeins í því fólgið, að í kaupstöðum ráða bæjarstjórnir, en í hreppum hreppsnefndir. — En þetta er nú svona, að það er til stofnun hér í landi, sem er lögfest, sem heitir sveitarfundur, en það er engin hliðstæð stofnun til í bæjum. Þetta byggist á gömlu skipulagi í landi okkar, sem hv. þm. virðist ekki þekkja. Það þarf enginn að kvíða því, að það sé á móti vilja kaupstaðar- eða bæjarbúa, sem 3/5 bæjarstjórnarmeðlima samþ. þegnskylduvinnuna. Lýðræðinu er því mjög sæmilega borgið með þessu frv. Og það þykir oft nægja, ef rúmur helmingur atkvæða er til staðar til þess að lýðræðinu sé borgið. Hér er mikill meiri hluti atkv., sem um er að ræða, svo frá sjónarmiði lýðræðisins þarf ekki að kvarta.
Hv. 5. þm. Reykv. var mest hissa á því, að hér skyldi hafa verið borið fram frv., sem sparar ríkissjóði engin útgjöld, sem hann ætti annars erfitt með að standa undir, heldur skapaði aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. En það er einmitt ekki tilgangurinn með þessum l. að spara ríkissjóði eða hreppssjóði nein útgjöld til vinnu, sem þeim ber að leggja fé í. Heldur er það tilgangurinn með þessu frv. að gera einhverjar frekari ráðstafanir til þess að gera eitthvað, sem hægt er að komast hjá, en hefur menningarlegt gildi, sem sveitirnar hafa áhuga fyrir að hrinda í framkvæmd. Það eru þeir nauðsynlegu hlutir, sem annars mundu verða vanræktir, sem þegnskylduvinnan skapar. En tilgangurinn er ekki sá að spara ríkissjóði útgjöld.